Haukar deildarbikarmeistarar 2013

Patrekur með konu sinni Rakel Guðnadóttur að fagna góðum titli í jólahófi hkd. Hauka í kvöldFyrsta mark leiksins í dag gaf sannarlega tóninni fyrir það sem myndi vera, stórkostlegt sirkusmark sem endaði með því að Sigurbergur skoraði og FH piltar stóðu bara og horfðu á. Þetta var gott dæmi um það sjálfstraust sem er í liðinu um þessar mundir og í dag áttu FH ingar engin svör við frábærri Haukavörn og vel útfærðum sóknum. Í hálfleik var staðan 15 – 10 Haukum í vil og lokatölur leiksins voru 25 – 22, enn einn glæsilegi sigurinn á FH í höfn.

Sem dæmi þá héldu Haukar markahæsta manni FH, Magnúsi Óla, alveg niðri og hann skoraði aðeins eitt mark í leiknum og munar um minna fyrir FH liðið. Giedrius stóð sig vel að vanda og var með 16 skot varin en mörg skot FH inga enduðu í höndum Haukavarnarinnar og oft í krumlunum á Jóni Þorbirni sem átti mjög góðan dag, bæði í vörn og sókn en hann setti 5 bolta í netið. Sigurbergur var mjög öflugur og var markahæstur með 7 mörk þar af 6 í fyrrihálfleik. Aðrir leikmenn voru líka mjög flottir og það var stolt Haukafólk sem fagnaði með sínum mönnum eftir leikinn.

Mörk Haukar: Sigurbergur Sveinsson 7/1, Jón Þorbjörn Jóhannsson 5, Árni Steinn Steinþórsson 5, Tjörvi Þorgeirsson 3, Elías Már Halldórsson 3, Adam Haukur Baumruk 1, Þröstur Þráinsson 1.

Til hamingju Haukar!

Núna eru Haukastrákarnir komnir í jóla og EM frí og næsti leikur þeirra í Olísdeildinni verður í Austurbergi 30. janúar 2014 á móti ÍR. Hér má sjá stöðuna, úrslit leikja og næstu leiki.

Haukastelpur eiga næsta leik á móti Fram Laugardaginn 11. janúar í Framhúsinu. Hér má sjá stöðuna, úrslit leikja og næstu leiki.

Við óskum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Áfram Haukar!

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…