Haukar heimsækja KR í kvöld

11. og loka umferð Domino‘s deildar karla fyrir jól fer fram í kvöld og spila Haukar gegn KR. Haukar, sem unnu góðan sigur á Skallagrími á föstudag, freistar þess að verða fyrsta liðið til að leggja KR að velli í deildinni í vetur. KR trónir á toppi deildarinnar með 20 stig en Haukar eru með 12 stig í 3.-6. sæti ásamt Njarðvík, Grindavík og Stjarnan. Leikur Hauka og KR hefst kl. 19:15 og fer fram í DHL höllinni, Frostaskjóli.

Gengi Hauka fyrir áramót hefur verið ótrúlega gott og vel hægt að segja að Haukar séu spútniklið deildarinnar það sem af er móti. Liðið hefur skilað gríðarlega góðri varnar vinnu og eru í toppnum yfir þau lið sem fæst stig hafa fengið á sig. Einu liðin fyrir ofan Hauka í þeim efnum eru Keflvíkingar sem eru í öðru sæti deildarinnar og svo topplið KR.

Við hvetjum alla Haukamenn, konur og börn til að koma inn í DHL-höll í kvöld og styðja við bakið á Haukaliðinu. 

Haukar heimsækja kr í kvöld

Haukar heimsækja KR í kvöld í Iceland Express-deild karla og hefst leikurinn kl. 19:15. Haukar munu tefla fram nyjum leikmanni en Gunnar Stefánsson, fyrrverandi Keflvíkingur og KR-ingur, hefur gengid til lids vid Hauka. Leikurinn er mikilvægur fyrir Hauka en _eir eru í mikilli fallhættu. Allir ad fjölmenna í kvöld.Haukar heimsækja KR í kvöld í Iceland Express-deild karla og hefst leikurinn kl. 19:15. Haukar munu tefla fram nyjum leikmanni en Gunnar Stefánsson, fyrrverandi Keflvíkingur og KR-ingur, hefur gengid til lids vid Hauka. Leikurinn er mikilvægur fyrir Hauka en _eir eru í mikilli fallhættu. Allir ad fjölmenna í kvöld.