Haukar-Breiðablik mfl.karla

Strákarnir okkar unnu stórsigur á Breiðablik á Ásvöllum í kvöld 39-24. Það var greinilegt strax í byrjun að þeir ætluðu að bæta ráð sitt frá síðasta leik. Fyrsta markið var okkar, gestirnir jöfnuðu í 1-1 en þá skildu leiðir. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 20-10. Í seinni hálfleik náðu Haukarnir mest 16 marka forskoti 29-13. Leikurinn var aldrei spennandi þar sem getumunur liðannna var ansi mikill. En strákarnir okkar sýndu áhorfendum oft á tíðum glæsileg tilþrif og skoruðu fullt af fallegum mörkum. Birkir Ívar fór á kostum í markinu og varði um 30 skot, þar af fjögur víti.
Markahæstir voru Dalius með 7 mörk og Ásgeir Örn með 6.