Haukar – Afturelding í Olís deild kvenna kl. 20:15 – ATH breyttur tími

20. Ramune

20. Ramune

Haukastelpur taka á móti Aftureldingu í kvöld kl. 20:15 í Schenkerhöllinni en leiknum var seinkað um 45 min. vegna leiks hjá körfunni á undan.

Stelpurnar spiluðu síðast á útivelli á móti Fram og leik þeim leik með jafntefli, 21-21 í hörku leik. Stelpurnar sitja núna í 7 sæti með einn sigurleik, eitt jafntefli og einn tapaðan.  Afturelding situr aftur á móti botni deildarinnar með þrjá tapleiki eftir þrjár umferðir. Þetta er því kjörið tækifæri fyrir stelpurnar að ná að lyfta sér hærra upp í töflunni.

Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta og hvetja stelpurnar en einnig er hægt að mæta snemma þar sem strákarnir í körfunni hefja kvöldið með leik á móti Íslandsmeisturum KR í 8 liða úrslitum Lengjubikarsins.