Haukar – KR í 8 liða úrslitum Lengjubikarsins í kvöld kl. 18:00

finnurundirskrÍslandsmeistararnir koma í heimsókn í kvöld kl. 18:00 og munu etja kappi við Haukana í 8 liða úrslitum Lengjubikarsins í kvöld í Schenkerhöllinni.

Haukarnir unnu sinn riðil, C riðil, nokkuð örugglega og fengu því heimaleik á móti liði í öðru sæti í D riðlinum, sem var KR en þeir töpuðu á móti Grindavík í sínum riðli.

Haukastrákarnir unnu tvo leiki um liðna helgi, á föstudag á móti Fjölni og á sunnudag á móti Hetti. Mikil batamerki voru á sóknarleik Haukanna í síðari leiknum en strákarnir verða að spila betri vörn ætli þeir sér að leggja sterkt lið KR að velli í kvöld.

Við hvetjum alla til að mæta á leikinn og styðja strákana en eftir leik verður svo handboltaleikur í Olís deild kvenna en þá komu stúlkurnur úr Mosfellsbænum í heimsókn og hvetjum við fólk til að styðja við bakið á stelpunum eftir KR leikinn.