Haukar – TV Grosswallstadt Í EHF-Keppninni

Frítt á völlinn í boði Rio Tinto Alcan

Haukar mæta þýska stórliðinu TV Grosswallstadt í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum EHF-keppninnar í handknattleik og hefst leikurinn kl 17:00 laugardaginn 27 nóv. Grosswallstadt vann nauman sigur í fyrri leiknum, 26-24, og Haukar eiga því góðan möguleika á að komast áfram.

STÓRVELDI MEÐ LANGA SÖGU

Grosswallstadt er fornfrægt stórveldi í evrópskum handknattleik og hefur félagið 7 sinnum orðið þýskur meistari og í fjórgang bikarmeistari.  Liðið varð Evrópumeistari meistaraliða árin 1979 og 1980, í síðara skiptið sigraði liðið Val í úrslitum.  Síðasti Þýskalandsmeistaratitill Grosswallstadt kom árið 1990 og árið 2000 sigraði liðið í Borgarkeppni Evrópu.  Með liðinu leika fjölmargir landsliðsmenn, þar á meðal okkar eigin Sverr Jakobsson.

Haukar hafa undanfarin ár haldið merki íslensks handbolta á lofti í Evrópukeppnunum.  Eftir að hafa náð þriðja sæti í sínum riðli Meistaradeildar Evrópu féll liðið út í 16-liða úrslitum EHF-keppninnar 2009 gegn þýska liðinu Nordhorn.  Á síðasta tímabili fór liðið aftur alla leið í 16-liða úrslitin en féll úr leik gegn spænska liðinu Naturhouse La Rioja.  Þátttaka í Evrópukeppninni er gríðarlega kostnaðarsöm og þurfti félagið að selja heimaleiki sína í 16-liða úrslitum undanfarin tvö ár.  Leikmenn, stjórn og stuðningsmenn Hauka hafa lagt gríðarlega hart að sér til að fjármagna þátttökuna undanfarin ár við erfiðar aðstæður.  Í því augnamiði halda Haukar, í samvinnu við Úlfar Eysteinsson matreiðslumann, Sjávarréttaveislu að Ásvöllum að leik loknum og opnar salur kl 19:00 Þar gefst áhugamönnum kostur á að bragða á því besta sem hafið færir okkur, matreiddu af okkar fremsta kokki.  Allur ágóði rennur beint í Evrópusjóð Hauka og kostar miðinn aðeins 5.500 krónur.

STUÐNINGUR NAUÐSYNLEGUR

Haukar þurfa að öllum þeim stuðningi að halda sem völ er á.  Til að þess að íslensk lið eigi þess kost að taka þátt í Evrópukeppnum í framtíðinni er nauðsynlegt að allir leggjist á eitt.  Handknattleiksdeild Hauka hvetur Íslendinga til að fjölmenna í íþróttahúsið að Ásvöllum og styðja Hauka.  Íslensk handboltalið hafa sýnt það í gegnum tíðina að með dyggum stuðningi áhorfenda er allt hægt.  Stuðningur fjölmiðla skiptir þar miklu máli og vonast Haukar eftir jákvæðri umfjöllum sem flestra í aðdraganda leiksin.

Með vinsemd og virðingu,

Valdimar Óskarsson

Formaður handknattleiksdeildar Hauka

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

HAUKAR – TV GROSSWALLSTADT Í EHF-KEPPNINNI

Frítt á völlinn í boði Rio Tinto Alcan

Haukar mæta þýska stórliðinu TV Grosswallstadt í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum EHF-keppninnar í handknattleik.  Grosswallstadt vann nauman sigur í fyrri leiknum, 26-24, og Haukar eiga því góðan möguleika á að komast áfram.

STÓRVELDI MEÐ LANGA SÖGU

Grosswallstadt er fornfrægt stórveldi í evrópskum handknattleik og hefur félagið 7 sinnum orðið þýskur meistari og í fjórgang bikarmeistari.  Liðið varð Evrópumeistari meistaraliða árin 1979 og 1980, í síðara skiptið sigraði liðið Val í úrslitum.  Síðasti Þýskalandsmeistaratitill Grosswallstadt kom árið 1990 og árið 2000 sigraði liðið í Borgarkeppni Evrópu.  Með liðinu leika fjölmargir landsliðsmenn, þar á meðal okkar eigin Sverr Jakobsson.

Haukar hafa undanfarin ár haldið merki íslensks handbolta á lofti í Evrópukeppnunum.  Eftir að hafa náð þriðja sæti í sínum riðli Meistaradeildar Evrópu féll liðið út í 16-liða úrslitum EHF-keppninnar 2009 gegn þýska liðinu Nordhorn.  Á síðasta tímabili fór liðið aftur alla leið í 16-liða úrslitin en féll úr leik gegn spænska liðinu Naturhouse La Rioja.  Þátttaka í Evrópukeppninni er gríðarlega kostnaðarsöm og þurfti félagið að selja heimaleiki sína í 16-liða úrslitum undanfarin tvö ár.  Leikmenn, stjórn og stuðningsmenn Hauka hafa lagt gríðarlega hart að sér til að fjármagna þátttökuna undanfarin ár við erfiðar aðstæður.  Í því augnamiði halda Haukar, í samvinnu við Úlfar Eysteinsson matreiðslumann, Sjávarréttaveislu að Ásvöllum að leik loknum.  Þar gefst áhugamönnum kostur á að bragða á því besta sem hafið færir okkur, matreiddu af okkar fremsta kokki.  Allur ágóði rennur beint í Evrópusjóð Hauka og kostar miðinn aðeins 5.500 krónur.