Haukar í kjörstöðu fyrir leik nr. 3 að Hlíðarenda í kvöld

Patti

Patrekur og strákarnir í mfl karla mæta Val í kvöld í leik 3 og með sigri sópa þeir Val úr keppninni.

Haukar hafa farið vel af stað í úrslitakeppninni í ár. Þeir sópuðu FH úr keppni 2-0 og eru komnir 2-0 yfir í einvíginu við Val og þurfa bara einn sigur til viðbótar til að tryggja sæti sitt í úrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn. Það var frábær stemmning á Ásvöllum á laugardaginn og nú sköpum við hörku Haukastemningu í Vodafonehöllinni í kvöld, þriðjudag, en leikurinn hefst kl. 19:30.

Áfram Haukar!