Haukar-ÍBV ESSO deild kvenna

Stelpurnar unnu FRÁBÆRAN sigur á ÍBV núna rétt áðan 27-25. Leikurinn byrjaði ekki vel hjá okkur, gestirnir skoruðu fyrsta markaði og komust í 1-5. Ekkert gekk í sókninni hjá okkur og vörnin var ekki að smella. ÍBV virtist hafa leikinn í höndum sér, komust í 2-6, 4-10 en þá tóku okkar stelpur við sér og náðu að minnka muninn í 9-12 og staðan í hálfleik var komin í eitt mark 14-15. Í seinni hálfleik jöfnuðu stelpurnar okkar strax 16-16 og komust yfir 19-17 og höfðu svo yfirhöndina 21-19, 24-22 en þá jöfnuðu gestirnir 24-24. Stelpurnar okkar gáfu ekkert eftir og komust aftur yfir 26-24 og 27-24 og lokatölur 27-25. Glæsilegur sigur hjá okkar stelpum sem sýndu hverjar eru bestar í dag.

Í lokinn er ekki hægt annað en nefna að að ÍBV-liðið tapaði ekki bara á vellinum heldur töpuðu aðstandendur og áhorfendur sér gjörsamlega á pöllunum.