Ásvellir í dag

Minnum á leikinn hjá stelpnum í dag kl. 14.00 á Ásvöllum er þær fá ÍBV, efsta lið deildarinar í heimsókn. Þessi tvö lið hafa verið í hópi bestu liða undanfarin ár og hafa leikið margan baráttuleikinn og því hægt að lofa skemmtilegum og spennandi leik í dag.

Eftir leikinn þá höldum við kyrru fyrir á Ásvöllum og horfum saman á leik Íslands og Þýskalands sem sýndur verður “í beinni” á stóra tjaldinu inní sal.