Haukagolfið 2004

Golfmót Knattspyrnufélagsins Hauka verður haldið föstudaginn 27. ágúst nk. á hinum stórglæsilega golfvelli Keilis á Hvaleyrinni.

Ræst verður út milli klukkan 11.00 og 15.00, og eru keppendur beðnir um að mæta tímanlega. Panta þarf rástíma í golfvöruverslunni í síma 565-3360 eða á Golf.is. Heimilt er að hefja leik fyrr um morguninn og þurfa þeir er það vilja að skrá sig á venjulegan hátt og skila fullgildu skorkorti í golfvöruverslun að leik loknum.

Aldurstakmark er 16 ára og eldri. Keppt verður um Rauða jakkann ásamt fjölda annarra glæsilegra vinninga og nándarverðlaun verða veitt á 10. og 16. braut og í öðru höggi á 18. braut.

Keppnisfyrirkomulag er punktakeppni. Keppendur með forgjöf 28-36 keppa á rauðum teigum.

Verðlaunaafhending fer fram í golfskálanum á Hvaleyrinni að lokinni keppni.

Haukafélagar eru hvattir til að taka þátt í mótinu og hitta gamla félaga í góðum félagsskap við iðkun hinnar göfugu golfíþróttar.

Keppnisgjald er kr. 2.000,00

Haukar í holu,
undirbúningsnefnd