American Style býður öllum á næsta heimaleik mfl k

Næsti heimaleikur mfl. karla er n.k. laugardag, 28.08.04 kl. 16:00 en þá mæta Haukar liði Völsungs. Það er ánægjulegt að geta sagt frá því að samningar hafa náðst við American Style um að fyrirtækið bjóði öllum á þennan leik.

Það þarf ekki að taka það fram að hér er um sannkallaðan fallbaráttuleik en eins og stendur erum við í neðsta sæti með 15 stig en Völsungar koma þar fyrir ofan með 16 stig. Með sigri í þessum leik eru góðir möguleikar fyrir Haukana að komast í 7 sætið og létta á pressunni. Hér hjálpar mikið að markatala Haukanna er mjög góð miðað við stöðu liðsins í deildinni. Full ástæða er til bjartsýni fyrir þennan leik þar sem liðið hefur leikið ágætlega undanfarið.

American Style vonast til að sem flestir sjái sér fært að mæta og hvetja liðið til sigurs. Það sýndi sig í síðasta heimaleik þegar um 500 manns mættu að stuðningurinn getur skipt sköpum, en þá unnu okkar menn góðan 4-1 sigur á HK.

Stjórn knattspyrnudeildarinnar þakkar American Style fyrir þennan stuðning.