Hanna og Birkir Ívar kjörin best

Hanna Guðrún Stefánsdóttir besti leikmaður m.fl. kvenna tímabilið 2009-2010Á lokahófi handknattleiksdeildar Hauka voru veittar viðurkenningar til leikmanna í meistaraflokkum félagsins og 2. fl. karla. Hanna Guðrún Stefánsdóttir var kjörin besti leikmaður meistaraflokks kvenna og Birkir Ívar Guðmundsson besti leikmaður meistaraflokks karla. Erla Eiríksdóttir var kjörinn bjartasta vonin í m.fl. kvenna og Aron Rafn Eðvarðsson í m.fl. karla. Hér að neðan má sjá yfirlit yfir allar viðurkenningar kvöldsins en það eru þjálfarar liðanna sem sáu um valið.

Besti leikmaður m.fl. karla: Birkir Ívar Guðmundsson
Bjartasta vonin í m.fl. karla: Aron Rafn Eðvarðsson

Besti leikmaður í m.fl. kvenna: Hanna Guðrún Stefánsdóttir
Bjartasta vonin í m.fl. karla: Erla Eiríksdóttir

Besti leikmaður 1989 árgangs í 2. fl. karla         Þórður Rafn Guðmundsson
Besti leikmaður 1990 árgangs í 2. fl. karla         Tjörvi Þorgeirsson
Besti leikmaður 1991 árgangs í 2. fl. karla         Einar Pétur Pétursson

Mestu framfarir í 1989 árgangi í 2. fl. karla      Aron Rafn Eðvarðsson
Mestu framfarir í 1990 árgangi í 2. fl. karla     Jónas Bragi Hafsteinsson
Mestu framfarir í 1991 árgangi í 2. fl. karla     Ólíver Jóhannsson