Handknattleiksdeild auglýsir eftir aðstoðarþjálfurum

HaukarHandknattleiksdeild Hauka auglýsir eftir tveimur aðstoðarþjálfurum fyrir annars vegar 7. flokk kvenna og hins vegar 5. flokk karla. Aðalþjálfari 7. flokks kvenna er Áslaug Þorgeirsdóttir og flokkurinn æfir þrisvar sinnum í viku: kl. 14.40-15.30 á mánudögum, 16.10-17.10 á fimmtudögum og kl. 10-11 á sunnudögum. Flokkurinn tekur þátt í fjórum mótum yfir veturinn, því fyrsta um næstu helgi sem fer fram á Ásvöllum. Aðalþjálfari 5. flokks karla er Elías Jónasson og flokkurinn æfir fjórum sinnum í viku: kl. 17.10-18.00 á mánudögum, kl. 19.30-21.00 á fimmtudögum, kl. 12-14 á laugardögum og kl. 11-13 á sunnudögum. Hvor árgangur flokksins tekur þátt í fimm mótum yfir veturinn. Áhugasamir hafi samband við Þorvarð Tjörva í síma 822-2867.