Tap í undanúrslitunum

Þóra Jónsdóttir og félagar spiluðu í undanúrslitum Lengjubikarsins í kvöld - mynd: Axel Finnur GylfasonHaukastelpur mættu Keflavík fyrr í kvöld í undanúrslitum Lengjubikars kvenna en leikið var í Ásgarði í Garðabæ. Stelpurnar sýndu flotta takta í leiknum og leiddu á köflum en Keflvíkingar voru sterkari í seinni hálfleik og unnu 93-84.

Margir leikmenn lögðu sitt af mörkum í kvöld og það er spennandi vetur framundan hjá þessu unga og skemmtilega liði.

Stigahæst hjá Haukum var Lele Hardy með 38 stig og 16 fráköst. Næst henni var María Lind Sigurðardóttir með 10 stig.

Tölfræði leiksins