Hafnarfjarðarmótið í handbolta hefst í kvöld

Matthías Árni Ingimarsson er fyrirliði Hauka.Nú er stutt í að handboltavertíðin fari að byrja og eins og fyrri ár þá halda Haukar og FH Hafnarfjarðarmót í handbolta. Mótið hefst í kvöld, fimmtudag, og stendur fram á laugardag. Allir leikir fara fram í Strandgötunni. Gestaliðin í ár verða ÍBV og Akureyri. Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að kíkja í Strandgötuna en það er alltaf fróðlegt að sjá hvernig liðin standa í lok undirbúningstímabilsins. Haukar unni þetta mót í fyrra og ætla sér að sjálfsögðu að verja titilinn.

Leikirnir:

Fim. 28.ágú.2014 18.00 Strandgata FH – ÍBV    
Fim. 28.ágú.2014 20.00 Strandgata Haukar – Akureyri    
Fös. 29.ágú.2014 18.00 Strandgata Haukar – ÍBV    
Fös. 29.ágú.2014 20.00 Strandgata FH – Akureyri    
Lau. 30.ágú.2014 14.00 Strandgata Akureyri – ÍBV    
Lau. 30.ágú.2014 16.00 Strandgata Haukar – FH

Áfram Haukar!

Hafnarfjarðarmótið í handbolta hefst í kvöld

Aron KristjánssonDagana 18. – 20. ágúst mun fara fram hið árlega Hafnarfjarðarmót sem FH, Haukar og Hafnarfjarðarbær hafa haft umsjón yfir í sameiningu. Mótið í ár er sérstakt því sænska úrvalsdeildarliðið Ekilstuna Guif tekur þátt í mótinu og er það í fyrsta skipti sem erlent lið tekur þátt. Eins og flestum ætti að vera kunnugt um er Guif undir stjórn íslenska þjálfarans Kristjáns Andréssonar. Að auki er einn leikmanna Guif íslenskur og er það bróðir Kristjáns, miðjumaðurinn Haukar Andrésson. Undir stjórn Kristjáns hefur Guif náð frábærum árangri: Síðustu tvö tímabil hefur hann komið liðinu í úrslitaeinvígið, en á síðasta tímabili tapaði Guif gegn sænsku meisturunum IK Savehof. Guif kom til landsins síðustu nótt og mun æfa þrisvar hér á landi ásamt því að leika í mótinu, gegn FH, Haukum og Val.
Fólk má eiga von á afar sterku handboltamóti með gæða handbolta á dagskrá.
Allir leikir mótsins munu fara fram í hinu fornfræga húsi, Íþróttahúsinu við Strandgötu og eru leikirnir sem hér segir:

Fimmtudaginn 18. ágúst
Kl 18.00 FH-Guif
kl 20.00 Haukar-Valur

Föstudaginn 19. ágúst
Kl 18.00 Haukar-Guif
kl 20.00 FH-Valur

Laugardaginn 20. ágúst
Kl 14.00 Valur-Guif
kl 16.00 FH-Haukar

Frítt er á alla leikina og hvetjum við alla handboltaunnendur að fjölmenna á leikina.

Frekari upplýsingar er að finna á fh.is og haukar.is