Haukar – Selfoss á Ásvöllum á laugardag kl. 13:00

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/selfoss mynd to 14.jpgMeistaraflokkur Hauka leikur á laugardag við Selfoss á Ásvöllum og hefst leikurinn kl. 13:00.

Þetta er síðasti leikur Hauka og Selfoss í riðlinum í Íslandsmótinu og ljóst að bæði liðin hafa tryggt sér rétt til að spila um sæti í Pepsí-deild kvenna á næsta ári. Haukar munu spila tvo leiki við FH og Selfoss tvo leiki við annað hvort Keflavík eða HK/Víking og fá sigurvegarar þessara leikja keppnisrétt í Pepsí-deildinni á næsta ári. 

Haukar og Selfoss hafa mæst tvisvar í sumar, fyrst í bikarleik á Ásvöllum og síðan í fyrri leik liðanna í Íslandsmótinu á Selfossi.  Selfoss vann bikarleikinn 2-0 og leikinn á Selfossi 1-0 með marki á síðustu mínútu leiksins.  Haukastúlkur voru síst lakari aðilinn í þessum leikjum.  Það var dýrkeypt að missa leikmann út af í 20 mínútur í byrjun bikarleiksins og þrátt fyrir nokkur ágæt marktækifæri tókst Haukastúlkum ekki að skora. Í leiknum á Selfossi þóttu Haukastúlkur sýna góðan leik, verið sterkara liðið allan leikinn og fengið mörg upplögð

marktækifæri sem ekki nýttust og síðan skoraði Selfoss í blálokin gegn gangi leiksins.

Aðspurður um þennan leik sagði Heimir Porca þjálfari Hauka að hann ætlaði að hvíla leikmenn sem hafa spilað mikið í sumar þar sem framundan væru úrslitaleikir við FH. Það breytti því samt ekki að markmiðið væri alltaf að ná í þrjú stig.

Sjá hér nánar stöðuna fyrir lokaleikinn, http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=24186

Haukar bjóða áhorfendum frítt á leiki Haukastúlkna í 1. deildinni í ár.  

Um leið og við hvetjum allt stuðningsfólk Hauka til að mæta á leikinn á laugardag látum við fylgja hér með nokkrar myndir úr bikarleik Hauka og Selfoss í byrjun sumars.

Áfram Haukar!

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/selfoss mynd to 15.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/selfoss mynd to 2.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/selfoss mynd to 3.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/selfoss mynd to 4.jpg

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/selfoss mynd to 7 - copy.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/selfoss mynd to 5.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/selfoss mynd to 6.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/selfoss mynd to 12.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/selfoss mynd to 10.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/selfoss mynd to 16.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

images/stories/Fotbolti/2011/Mfl._kvenna_2011/selfoss mynd to 9.jpg

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…