Eftir frábæran sigur á vinum okkar úr Fram í síðustu viku er komið að næsta verkefni en það er botnlið Gróttu af Seltjarnarnesi sem kemur í heimsókn í Schenkerhöllina. Grótta hefur ekki riðið feitum hesti frá leikjum í N1 deildinni hingað til og sitja á botninum með aðeins eitt stig. Þrátt fyrir það þykir undirrutuðum Gróttumenn eiga mikið inni, þeir hafa spilað flottan bolta á köflum og hafa úr að spila mörgum stórskemmtilegum of sprækum leikmönnum.
Svona lið má ekki vanmeta en Haukar hafa gerst sekir um vanmat á botnliði í vetur og komst það nálægt því að kosta stig, látum það ekki koma fyrir aftur og hvetjum okkar menn til sigurs klukkan 19:30 í kvöld í Schenkerhöllinni!
Áfram Haukar!