Stjarnan-Haukar ESSOdeild kvenna
Stelpurnar okkar unnu stórglæsilegan sigur 19-24 á Stjörnunni í Garðabæ í dag. Leikurinn byrjaði jafnt, Stjarnan fyrri til að skora en Haukar jöfnuðu jafnharðan. Okkar stelpur komust fyrst yfir 4-5 og náðu síðan góðri forystu 6-9 um miðjan fyrri hálfleik. Voru að spila fína vörn og góðan sóknarbolta. Þá kom kafli þar sem ekkert gekk…
