C.BM. Ademar Leon
Smá upplýsingar um liðið sem við mætum í 16-liða úrslitum í Evrópukeppninni.
Liðið heitir C.BM. Ademar Leon og kemur frá handboltabænum Leon á Spáni. Í síðustu umferð slógu þeir út BSV Wacker Thun frá Sviss. Þeir unnu fyrri leikinn 35-21 og seinni leikinn 27-26. Liðið er í 3ja sæti í spænsku deildinni, með jafnmörg stig og liðið hans Rúnars Sigtryggssonar BM. Ciudad Real sem er í 1. sæti og vinir okkar í Barcelona sem eru í 2. sæti, öll með 18 stig eftir 10 leiki. Það er því nokkuð ljóst er hér eru engir aukvisar á ferðinni, eitt af toppliðum í spænska boltanum.
Fyrri leikurinn verður úti helgina 7. eða 8. desember og seinni leikurinn hér heima á Ásvöllum 14. eða 15. desember. Nú er bara að byrja að hlakka til að fá að taka áfram þátt í ævintýrinu.
Hér er slóðin á heimasíðuna þeirra {Tengill_8}
