Fréttasafn

  • Conversano-Haukar

    Staðan eftir 10 mín. leik er 4-5 fyrir okkur. Eftir 16 mín. er staðan 7-7. Þetta lítur vel út á Ítalíu, staðan eftir 25 mín er 9-12 fyrir okkur. Þá er kominn hálfleikur á og staðan 15-12 fyrir okkur. Við höfum ekki miklar fréttir hverning leikurinn hefur spilast, vitum þó að Dóri hefur skorað 7…

  • Sagan endalausa ……….

    Áfrýjunardómstóll HSÍ hefur kveðið upp dóm í máli Ungmennafélags Selfoss geng Handknattleiksdeild Hauka í máli Robertas Pauzuolis. Dómsorðið er þannig: “Hinn áfrýjaði dómur skal vera óraskaður”. Þetta þýðir að dómur Dómstóls HSÍ frá 1. nóv. skal standa og leikheimild Robertas með Haukum er staðfest.

  • Evrópukeppnin

    Nú styttist í að strákarnir okkar leggi af stað í langt og strangt ferðalag til Ítalíu í leikinn við Conversano í Evrópukeppninni. Upp úr klukkan fimm í nótt, þegar við erum enn í draumaheimi, leggja þeir af stað upp á Ásvelli og halda þaðan til Keflavíkur. Þeir fljúga til Parísar og lenda þar um hádegi…

  • SS-Bikarinn

    Í dag var dregið í 8-liða úrslitum SS bikarsins. Mfl. kvenna (leikið skal 27. nóvember 2002) FylkirÍR – ÍBV KA/Þór – Haukar Valur – Stjarnan FH – Fram Mfl. karla (leikið skal 4.desember 2002) Breiðablik – Fram HK – ÍR Fylkir – Valur UMFA – GróttaKR Heimasíða {Tengill_4}

  • Dómstóll HSÍ

    Dómstóll HSÍ kvað nú rétt áðan upp dóm í máli Robertas, skyttunnar okkar öflugu. Dómsorðið er eftirfarandi: “HSÍ skal heimila félagaskipti Robertas Pauzuolis úr Ungmennafélagi Selfoss yfir í Hauka.” Það er vonandi að málinu sé hér með lokið og Robertas geti stundað sína íþrótt með félögum sínum í Haukum.

  • A-landslið kvenna

    Samkvæmt frétt á heimasíðu HSÍ hafa Stefán Arnarson og Örn Ólafsson, þjálfarar A-landsliðs kvenna, valið 16 leikmenn til þess að taka þátt í æfingaleikjum í Slóveníu 2. – 6. nóvember n.k. Markmenn: Berglind Hansdóttir, Valur Helga Torfadóttir, Víkingur Hornamenn: Anna Blöndal, Stjarnan Dagný Skúladóttir, Issy Les- Moulineaux Hanna Stefánsdóttir, Haukar Ragna Karen Sigurðardóttir, Grótta/ KR…

  • Haukar-HK mfl.ka.

    Strákarnir fóru illa að ráðu sínu er þeir tóku á móti HK á Ásvöllum í kvöld í Essó deildinni. Leikurinn endaði með jafntefli 24-24 eftir að okkar menn höfðu verið með leikinni í höndum sér allt fram á síðustu mínútur. Þeir byrjuðu leikinn vel, skoruðu fyrsta markið og náðu góðu forskoti, komust í 10-4, 14-7…

  • Landsliðshópur World Cup 2002

    Samkvæmt frétt á heimasíðu HSí hefur Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari valið 17 manna hóp til að spila á World Cup í Svíþjóð dagana 29.október – 03.nóvember 2002. Ísland leikur fyrsta leikinn gegn Rússlandi þriðjudaginn 29.10.02 kl 20.30. Annar leikur er gegn Þýskalandi 30.10.02 kl 20.30 og þriðji leikurinn í riðlinum er gegn Júgóslavíu Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson,…

  • Haukar-FH mfk.kv.

    Stelpurnar okkar unnu frábæran sigur 26-24 á nágrönnum okkar fimleikafélaginu. Þær byrjuðu betur og höfðu yfirhöndina allan leikinn, reyndar var staðan 1-1 og 2-2 í byrjun en Haukastelpurnar voru síðan alltaf með frumkvæðið. Staðan í hálfleik var 15-10. Gestirnir náðu að minnka muninn í eitt mark undir lokin, en okkar stelpur héldu haus þrátt fyrir…