Fréttasafn

  • Haukar – Ademar

    Athygli er vakin á því að leikurinn á morgun hefst kl.11:30 að ÍSLENSKUM tíma en ekki 13:30 eins og áður var sagt. Fylgist með því leikurinn verður uppfærður hér jafnóðum og mjög líklega koma myndir frá strákunum í dag og/eða á morgun.

  • Ademar-Haukar Evrópukeppnin

    Strákarnir lögðu af stað núna í morgun til Leon á Spáni í leikinn við Ademar í Evrópukeppninni. Upp úr klukkan sex fóru þeir héðan úr Hafnarfirði til Keflavíkur og fljúga þaðan til London. Í London bíða þeir fram eftir degi og fljúga þaðan rétt fyrir klukkan sex . Áætluð lending í Bilbao eru um hálf…

  • Haukar – FH ESSÓ deild karla

    Strákarnir unnu glæsilegan og öruggan sigur 27-19 á Fimleikafélaginu á Ásvöllum í gærkvöldi. Leikurinn varð aldrei spennandi, þvílíkir voru yfirburðir okkar manna. Birkir Ívar var bestur okkar manna með 21 bolta varinn og þar af eitt víti. Vörnin var góð og sóknin ákveðin. Það var aldrei spurning um hvernig þessi leikur myndi fara, hrein einstefna….

  • ÍBV-Haukar ESSÓdeild karla

    Það gekk illa hjá strákunum að komast til Eyja í morgun, en þeir áttu aftur á móti ekki í neinum vandræðum með lið ÍBV á handboltavellinum og unnu stórsigur 19-33. Markahæstir voru Jason, Robertas og Þorkell með 6 mörk hver. Fátt virðist stöðva strákana þessa dagana og eru þeir greinilega komnir á beinu brautina.

  • Leikir helgarinnar

    Minnum á leikinn hjá stelpunum á morgun kl. 16.30 á Ásvöllum við GróttuKR. Þetta er síðasta leikurinn hjá þeim fyrir jól, svo endilega öll að mæta og hvetja þær og kveðja fyrir jólafrí. Strákarnir spila á morgun við ÍBV út í Eyjum kl. 14.00. Þeir eru aldeilis ekki á leið í jólafrí, eiga eftir fimm…

  • Fram-Haukar ESSÓdeild karla

    Strákarnir unnu öruggan sigur 26-32 er þeir heimsóttu Fram í kvöld. Manni virtist ljóst strax á fyrstu mínútum leiksins að þeim sem blésu í flauturnar var ekki vel við Aron okkar Kristjánsson og kórónaði rautt spjald (3x2min) í byrjun seinni hálfleiks þá skoðun. Aron var reyndar ekki sá eini sem fékk að lúta fyrir þeim…

  • Fróðleikur

    Til fróðleiks fyrir þá sem ekki vita að þá er alltaf hægt að sjá stöðuna í bæði Esso deild karla og Esso deild kvenna hér á Haukasíðunni. Það er að finna undir „Meistaraflokkar“

  • Haukar-Umfa ESSÓdeild karla

    Strákarnir unnu öruggan sigur á Aftureldingu 27-20 á Ásvöllum í kvöld. Gestirnir skoruðu fyrsta markið en síðan tóku okkar menn öll völd á vellinum og aldrei var spurning hvernig færi. Þeir komust í 6-2, 8-3, 10-4, 14-9 og staðan í hálfleik var 17-11. Afturelding skoraði fyrstu þrjú mörk seinni hálfleiks og minnkaði muninn í 17-14…