Fréttasafn

  • Adam framlengir við Hauka

    Skyttan Adam Haukur Baumruk hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Hauka og mun hann spila með Haukum næstu 3 árin. Adam hefur verið einn af lykilmönnum meistaraflokks undanfarin ár og er einn af leikreyndustu leikmönnum liðsins. Á tímabilinu hefur Adam skorað 41 mark í þeim 15 leikjum sem búnir eru ásamt því að leika lykilhlutverk…

  • Blað Hauka á 90 ára afmæli félagsins.

      Kæru Haukafélagar. Þann 12. apríl nk. fagnar félagið okkar 90 ára afmæli.  Í tilefni afmælisins gaf félagið út myndarlegt blað í samvinnu við Morgunblaðið.  Blaðinu var dreift í aldreifingu á höfuðborgarsvæðinu og til áskrifenda Morgunblaðsins um land allt, fimmtudaginn 8. apríl. Hér neðangreint má sjá blaðið með því að smella á tengil.  Blaðið má…

  • Ásta Björt til liðs við Hauka

    Ásta Björt Júlíusdóttir hefur gert samning við handknattleiksdeild Hauka um að leika með meistaraflokki félagsins næstu 3 árin. Ásta Björt kemur til liðs við Hauka frá ÍBV þar sem hún er uppalin og hefur leikið allan sinn feril. Ásta Björt er 22 ára örvhent skytta en getur einnig leyst stöðu hægri hornamanns. Ásta hefur nú…

  • Emily Armstrong til Hauka

    Emily Armstrong hefur undirritað samning við knattspyrnufélag Hauka og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Emily er 27 ára markmaður og kemur frá Bandaríkjunum. Hún er Íslandsvinur en hún lék með ÍBV í Pepsídeildinni 2018 og þekkir því vel íslenska boltann. þá hefur hún einnig leikið í Svíþjóð í næst efstu deild þar,…

  • Kiley Norkus til Hauka

    Kiley Norkus hefur undirritað samning við knattspyrnufélag Hauka og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar 2021. Kiley er 26 ára, kemur frá Bandaríkjunum og er sannkölluð multiplayer. Hún er allra helst sóknarmaður en getur leyst margar stöður á vellinum, en hún hefur spilað sem framherji, miðjumaður og einnig bakvörður. Kiley er efnilegur leikmaður…

  • Þórey Björk í Hauka.

    Þórey Björk Eyþórsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hauka, en hún kemur frá nágrannafélagi okkar FH. Þórey Björk er 19 ára gömul og á að baki tíu leiki í efstu deild og 23 í næstefstu deild. Þórey er sóknarmaður, með mikinn hraða og góð í hóp og því frábært að fá hana til…

  • Fjölmargir Haukakrakkar í landsliðsverkefnum

    Í mars fóru fram landsliðsæfingar karla og kvenna í handbolta og þar á meðal æfðu öll yngri landslið Íslands og áttu Haukar fjömarga fulltrúa í þeim hópum. Í U-19 ára landsliði karla voru þeir Guðmundur Bragi Ástþórsson, Jakob Aronsson, Kristófer Máni Jónasson, Magnús Gunnar Karlsson, Róbert Snær Örvarsson og Þorfinnur Máni Björnsson. U-17 ára landsliði…