Kiley Norkus til Hauka

Kiley Norkus hefur undirritað samning við knattspyrnufélag Hauka og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar 2021.

Kiley er 26 ára, kemur frá Bandaríkjunum og er sannkölluð multiplayer. Hún er allra helst sóknarmaður en getur leyst margar stöður á vellinum, en hún hefur spilað sem framherji, miðjumaður og einnig bakvörður. Kiley er efnilegur leikmaður og hefur spilað á Spáni og Svíþjóð ásamt því að spila háskólaboltanum í Bandaríkjunum.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar nýjum samningi við Kiley og bjóðum hana hjartanlega velkomna í félagið.

Kiley Norkus – Mynd: aðsend