Anna Rut, Guðrún Inga, Ragnheiður og Rut semja við knattspyrnudeild Hauka
Fjórir leikmenn í 3. flokki kvenna hafa skrifað undir samning við knattspyrnudeild Hauka til næstu þriggja ára en þær hafa verið valdar í yngri landslið síðustu misserin og fengið tækifæri til að æfa með meistaraflokki kvenna. Um er að ræða leikmenn sem eru hluti af stórum og efnilegum 2006 og 2007 árgöngum í knattspyrnudeild Hauka….
