Máni gerir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka

Máni Mar Steinbjörnsson hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka en hann á að baki 54 leiki fyrir meistaraflokk karla og hefur skorað tvö mörk.

Máni, fæddur árið 2000, er öflugur varnarmaður sem spilar að jafnaði sem hafsent en hann hefur þó spilað allar stöður í vörninni sem og djúp miðja.

Stjórn knattspyrnudeildar fagnar nýjum samningi við Mána.

Ljósm. Hulda Margrét

Máni Mar