Milos Peric semur við knattspyrnudeild Hauka

Markvörðurinn Milos Peric og knattspyrnudeild Hauka hafa skrifað undir samning þess efnis að Milos spili með Haukum á næsta tímabili í 2. deild karla.

Milos, sem er 31 árs, á að baki 115 leiki með Fjarðabyggð sem og leiki í serbnesku úrvalsdeildinni.

Milos kveðst mjög ánægður með að vera búinn að semja við Hauka. ,,Haukar hafa þann metnað að vilja berjast um sæti í Lengjudeildinni og ég deili þeim metnaði – það var það sem heillaði mig við að semja við Hauka. Ég hlakka til nýs upphafs og get varla beðið með að hitta liðið og hefja þessa vegferð okkar,“ segir Milos.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar komu Milos á Ásvelli þar sem hann mun koma með mikla reynslu og mikil gæði inn í meistaraflokk Hauka sem hefur það skýra markmið að berjast um sæti í Lengjudeildinni.

Milos Peric