Aðalfundur Knattspyrnudeildar
Aðalfundur Knattspyrnudeildar verður haldinn miðvikudaginn 14. febrúar kl. 20:00 í Forsalnum. Dagskrá fundarins samkvæmt lögum félagsins. Stjórnin
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Aðalfundur Knattspyrnudeildar verður haldinn miðvikudaginn 14. febrúar kl. 20:00 í Forsalnum. Dagskrá fundarins samkvæmt lögum félagsins. Stjórnin
Kvenna- og karlalið kkd Hauka sitja á toppi Dominos deildanna og ljóst er að bæði lið munu gera harða atlögu að deildarmeistaratitlunum. Kvennaliðið hefur verið að spila gríðarlega vel á árinu 2018 og ekki tapað leik, unnið síðustu 5 leiki. Kvennaliðið hefur unnið 14 leiki og tapað 5 og sitja á toppnum með 28 stig,…
Kkd Hauka og Tengi gerðu nú nýlega auglýsingasamning þar sem fyrirtækið mun auglýsa nafn fyrirtækisins, Tengi, á baklið búnings mfl kk og kvk út tímabilið. Tengi er eitt stærsta fyrirtæki landsins með blöndunartæki og hreinlætistækjum og er þekkt fyrir gæða vörur og þjónustu. Hauka bjóða þetta öfluga fyrirtæki velkominn í hóp góðra fyrirtækja sem auglýsa…
Kristinn Pétursson náði þeim merkilega áfanga í kvöld að hafa leikið með tveimur meistaraflokkum Hauka, eitthvað sem þótti kannski ekki sérstakt á síðustu öld en er fáheyrt á 21. öldinni á Íslandi. Í kvöld kom Kristinn inn á í knattspyrnuleik Hauka gegn Njarðvík í Fótbolti.net mótinu en Kristinn náði því strax árið 2015 að leika…
Handboltinn snýr tilbaka með bombu í kvöld, þriðjudagskvöld; þegar að boðið verður upp á tvíhöfða í Schenkerhöllinni. Fyrst eru það stelpurnar í meistarflokk kvenna sem etja kappi við Gróttu kl. 18:00 og svo leika strákarnir í meistaraflokki karla sinn fyrsta leik eftir langt frí kl. 20:00 þegar að Stjarnan er mótherjinn. Það er því um…
Handknattleiksdeild Hauka hefur skrifað undir samning við Árna Þór Sigtryggsson en hann kemur til liðs við Hauka frá Val þar sem að hann hefur leikið í Olís deild karla fyrir áramót. Árni Þór er hægri skytta og er kærkomin viðbót við leikmannahóp meistaraflokks karla en samningurinn milli Árna og Hauka gildir fram á sumar. Árni er…
Topplið Dominos deildar kvenna verður háður á miðvikudaginn, þann 31. jan., í Schenkerhöllinni kl. 19:15, er Valsstúlkur koma í heimsókn. Valsliðið vermir toppsætið en Haukar sitja í öðru sæti, einungis einum leik á eftir Val. Það er því ljóst að um gríðarlega mikilvægan leik er að ræða en með sigra geta Haukastúlkur tillt sér í…
Hinn efnilegi körfuknattleiksleikmaður og yngri flokka landsliðsmaður, Hilmar Pétursson, er kominn aftur heim eftir stutta dvöl hjá Keflavík. Hilmar skipti yfir í Keflavík í sumar en eftir komu Harðar Axel til Keflavíkur hefur spilatími Hilmars minnkað mikið og þvi ákvað hinn ungi og efnilegi leikmaður að koma aftur á heimaslóðir. Hilmar er gríðarlegt efni, uppalinn…
Hildur Aðalsteinsdóttir sem var íþróttakona Almenningsíþróttadeildar Hauka 2017 hefur verið valin af FRÍ (frjálsíþróttasambandi íslands) til að taka þátt í heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum sem haldið verður á Spáni 12. maí 2018. Við hjá Skokkhópi Hauka erum gríðarlega stolt af okkar fyrstu landsliðsmanneskju og erum sannfærð um að hún standi sig með miklum sóma.
Á aðalstjórnarfundi í Knattspyrnufélaginu Haukum sem haldinn var þann 23. janúar 2018 var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða. Knattspyrnufélagið Haukar fordæmir kynferðislegt ofbeldi í íþróttum og vísar þar meðal annars til þeirra miklu og þörfu umræðu sem hrundið var af stað undir merkjum #metoo. Knattspyrnufélagið Haukar telur mikilvægt að samræmt regluverk sé til staðar til að…