Skokkhópur Hauka hefur eignast sína fyrstu landsliðsmanneskju.

Hildur Aðalsteinsdóttir sem var íþróttakona Almenningsíþróttadeildar Hauka 2017 hefur verið valin af FRÍ (frjálsíþróttasambandi íslands) til að taka þátt í heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum sem haldið verður á Spáni 12. maí 2018.

Við hjá Skokkhópi Hauka erum gríðarlega stolt af okkar fyrstu landsliðsmanneskju og erum sannfærð um að hún standi sig með miklum sóma.