Árni Þór til liðs við Hauka á ný

Árni Þór hefur samið við Hauka á ný. Mynd: Haukar (frjáls til afnota)

Handknattleiksdeild Hauka hefur skrifað undir samning við Árna Þór Sigtryggsson en hann kemur til liðs við Hauka frá Val þar sem að hann hefur leikið í Olís deild karla fyrir áramót. Árni Þór er hægri skytta og er kærkomin viðbót við leikmannahóp meistaraflokks karla en samningurinn milli Árna og Hauka gildir fram á sumar. Árni er ekki ókunnugur parketinu á Ásvöllum en hann lék með Haukum við góðan orðstýr á árunum 2005 til 2007. Haukar bjóða Árna Þór kærlega velkominn til Hauka á ný.

Það er svo á morgun sem að meistarflokkur karla snýr aftur eftir lang hlé þegar að Haukar fá Stjörunna í heimsókn Schenkerhöllina á morgun, þriðjudag kl. 20:00 en boðið verður upp á tvíhöfða annað kvöld því kl. 18:00 mæta stelpurnar í meistaraflokki Gróttu kl. 18:00. Áfram Haukar!