Toppslagur í Dominos deild kvenna á miðvikudaginn.

Topplið Dominos deildar kvenna verður háður á miðvikudaginn, þann 31. jan., í Schenkerhöllinni kl. 19:15, er Valsstúlkur koma í heimsókn.

Valsliðið vermir toppsætið en Haukar sitja í öðru sæti, einungis einum leik á eftir Val. Það er því ljóst að um gríðarlega mikilvægan leik er að ræða en með sigra geta Haukastúlkur tillt sér í toppsætið.

Haukaliðið hefur spilað gríðarlega vel á nýju ári og hafa nú unnið alla þrjá leikina á þessu ári og hafa verið að spila mjög vel. Sigrarnir hafa ekki síst verið stórir þar sem lykilmanneskjan, Helena Sverrisdóttir, hefur ekki spilað með liðinu á nýjur ári en ljóst er að Helena mun spila næsta leik þar sem hún kom heim í lok síðustu viku.

Haukar mæta því með gríðarlega sterkt lið til leiks þar sem nýr erlendur leikmaður hefur fallið mjög vel inní leik liðsins.

Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta og hvetja stelpurnar áfram til sigurs í þessum mikilvæga leik.

Áfram Haukar