Framarar koma í heimsókn

haukarframkkÁ morgun, fimmtudag, er komið að næsta leik hjá meistaraflokki karla í handbolta í Olísdeildinni þegar ungt lið Fram kemur í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19:30 en leikurinn er í 5. umferð deildarinnar.

Haukamenn hafa ekki byrjað tímabilið eins og vænst hefur en aðeins einn sigur hefur náðst úr þeim fjórum leikjum sem búnir eru en það var gegn Selfoss og situr liðið í 9. sæti. Framarar hafa byrjað tímabilið svipað og Haukar en þeir eru með 3 stig úr leikjunum 4 sem búnir eru en þeir gerðu jaftefli við ÍBV og unnu svo Selfoss í síðasta leik. Það má þó geta þess að Fram tefnir nánast fram nýju liði í vetur eftir að margir leikmenn liðsins fóru frá liðinu í sumar og í staðin hafa ungir og efnilegir Framarar tekið við keflinu og helst ber að nefna hinn 16 ára gamla Viktor Gísla Hallgrímsson en hann er 2 metra hár markmaður sem hefur farið á kostum markinu og hefur hann átti stóran þátt í þeim stigum sem Framliðið hefur fengið í vetur.

Haukamenn verða því að vera betri í skotum sínum á markið en í síðasta leik þar sem sóknarleikurinn varð þeim að falli ef þeir vilja komast aftur á sigurbraut. Þá er má því búast við flottum handboltaleik á morgun, fimmtudag, í Schenkerhöllinni kl. 19.30 og um að gera fyrir allt Haukafólk að fjölmenna. Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…