Haukar Íslandsmeistarar í 1. deild kvenna

Haukar tryggðu sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna eftir magnaðan 5-1 sigur gegn Grindavík. Bæði lið höfðu tryggt sér sæti í Pepsí deildinni á næsta ári þannig að leikurinn snérist fyrst og fremst um heiðurinn og að fá bikar í safnið. Í kjölfarið var blásið í smá hátíð á Ásvöllum þar sem stelpunum var vel fagnað.

Grindavík komst í 1-0 á þriðju mínútu leiksins en Þórdís Elva Ágústsdóttir  jafnaði leikinn með góðu skoti á 26. mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Það voru e.t.v. ekki margir sem bjuggust við því að okkar stúlkur væru komnar í 4-1 eftir 12 mínútur í seinni hálfleik .  Dagrún Birta Karlsdóttir kom okkur í 2-1 á 52. mínútu og Heiða Rakel Guðmundsdóttir bættti við þriðja markinu tveimur mínútum síðar eftir að Hildigunnur Ólafsdóttir átti skot í stöng.  Hildigunnur bætti svo við fjórða markinu á 57. mínútu. Alexandra Jóhannsdóttir setti svo punktinn algjörlega yfir i-ið þegar hún skoraði með löngu skoti á 90. mínútu.  Glæsilegur sigur okkar stúlkna staðreynd!

Það var svo sannarlega gaman í Grindavík í kvöld, ekki eingöngu út af úrslitum leiksins heldur einnig þar sem við Hauka fólk áttum hreinlega stúkuna enda fór Rauði herinn á kostum!

Myndirnar að neðan eru frá sigurhátíðinni í kvöld á Ásvöllum en þar var Margrét Björg Ástvaldsdóttir verðlaunuð fyrir að vera leikmaður leiksins í kvöld.

Þá afhentu leikmenn meistaraflokks kvenna þeim Valborgu Óskarsdóttur, fráfarandi formanni meistaraflokksráðs kvenna, og Gunnari Baldurssyni í meistaraflokksráði fyrir ómetanlegt framlag í þágu meistaraflokks kvenna hjá Haukum til fjölda ára.

Ljóst er að árangur sumarsins er eftirtektarverður og í raun stórkostlegur. Stelpurnar urðu Lengjubikarmeistarar í C deildinni í vor og Íslandsmeistarar í dag – tveir bikarar og skemmtilegir og spennandi tímar framundan í Pepsí deildinni!

Viðtöl við okkar fólk á Fótbolti.net eftir leikinn í kvöld:


IMG_6956

 

IMG_6950IMG_6988IMG_6999IMG_6993IMG_6980