Stelpurnar okkar spiluðu við Fram í kvöld og unnu góðan sigur 24-29. Þær voru yfir allan leikinn, staðan í hálfleik var 12-14. Mest náðu stelpurnar 10 marka forskoti en slökuðu of á í lokin. Þetta var ekki beint góður leikur, mikið um mistök hjá öllum á vellinum, en sigurinn skilar tveimum stigum og það er það sem telur.