Fjórði eins marka sigurinn frá áramótum

Sigurbergur átti mjög góðan leik fyrir Hauka gegn Fram í kvöldHaukar lögðu Fram með einu marki í Safamýrinni í kvöld, 32-33 í hörkuleik. Þetta er í fjórða sinn sem strákarnir sigra með einu marki frá áramótum en helmingi leikja þeirra í deildinni hefur lokið með þeim hætti það sem af er liðið ári. Þegar mánuður er uns úrslitakeppnin hefst og strákarnir eiga fjóra leiki eftir í deildinni þá leiða þeir deildina með sex stigum. Akureyri er í öðru sæti með 22 stig en liðið tapaði gegn Gróttu um helgina. Valur og HK skildu jöfn en Hlíðarendaliðið er í fimmta sæti um þessar mundir sem þykir ekki ásættanlegt á þeim bænum á meðan að Kópavogsliðið er í því þriðja. FH-ingar misstu af kjörnu tækifæri til að komast í þriðja sætið í kvöld með því að tapa á heimavelli gegn Stjörnunni en liðið hefur aðeins unnið einn leik af síðustu fjórum. Næsti leikur Hauka er fimmtudaginn á Ásvöllum þegar Valsmenn koma í heimsókn hungraðir í stig eftir brösótt gengi að undanförnu.

Leikur í kvöld var fjörugur. Staðan í hálfleik var 18-18 sem segir sitt um jafnvægið á milli sóknar- og varnarleiks hjá báðum liðum. Haukaliðið átti í engum vandræðum með að spila sig í góð færi en reyndist erfitt að stöðva sóknarleik Fram, einkum Andra Berg Haraldsson sem fór mikinn í fyrri hálfleik. Sigurbergur Sveinsson og Freyr Brynjarsson fóru fyrir Haukaliðinu í fyrri hálfleik og skoruðu báðir mörg glæsileg mörk. Haukar höfðu áfram frumkvæðið lengst af seinni hálfleik og náðu m.a. þriggja og fjögurra marka forystu uns Fram náði að jafna metin 24-24 um miðbik hálfleiksins. Sóknarleikur Haukaliðsins riðlaðist nokkuð þegar Sigurbergur var tekinn út auk þess sem Magnús Erlendsson var erfiður við að eiga í markinu eins og svo oft áður á móti Haukum. Hinum megin á vellinum átti Haukavörnin í miklum vandræðum með Harald Þorvarðarson á línunni. Aron Rafn lét til sín taka í seinni hálfleik og varði mikilvæg skot. Mbl.is segir hann hafa varið 17 skot í leiknum, þar af 12 í þeim seinni.

Lokamínútur leiksins voru æsispennandi. Fram jafnaði 31-31 þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Sigurbergur Sveinsson skoraði þá mjög glæsilegt mark þegar hendin var komin upp. Aron Rafn varði síðan í næstu sókn Framliðsins og Guðmundur Árni Ólafsson skoraði 33. mark Hauka úr víti sem Tjörvi Þorgeirsson sótti en hann kom inná á lokamínútunum og stóð sig vel undir pressu. Guðjón Drengsson minnkaði muninn en allt kom fyrir ekki og enn einn eins-marka-sigurinn í hús.

Síðasti heimaleikur Haukastrákana fyrir páska fer fram á fimmtudaginn þegar Valsmenn koma í heimsókn eins og áður segir. Á laugardaginn taka svo stelpurnar á móti FH.

Bein lýsing hjá Mbl.is

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…