Ferðin til Lissabon

HaukarS.L. BenficaStrákarnir í meistaraflokki karla spila í annarri umferð í Evrópukeppni félagsliða gegn stórliði S.L. Benfica og fer fyrri leikurinn fram í Lissabon laugardaginn 12. október n.k. kl. 17:00 og sá síðari viku síðar að Ásvöllum eða sunnudaginn 20. október  kl. 17:00. Það kom strax upp hugmynd um að reyna að vera með hópferð á leikinn úti og hefur verið unnið að því undanfarna daga að finna lausnir til að geta boðið upp á slíka ferð.

Því miður reyndist það vera þrautin þyngri þar sem það eru vetrarfrí í skólum í Evrópu og öll flug vel bókuð. Niðurstaðan sem við fengum að lokum fannst okkur einfaldlega of dýr til að bjóða fólki upp á þann pakka. En það eru einhverjir byrjaðir að bóka sig sjálfir í gegnum netið og skorum við á fólk að hætta ekki við að fara heldur einfaldlega að bóka sig sjálft því það fást betri verð þegar færri eru að bóka sig saman. Hótelið sem strákarnir verða á úti heitir Amazónia Jamor Hotel, klikkið á nafnið til að fara inn á heimasíðuna hjá þeim. 

Okkur þykir leitt að geta ekki boðið upp á einn pakka fyrir fólk en eins og áður sagði var sá pakki sem í boði var einfaldlega of dýr að okkar mati.

Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að fylgja strákunum í þennan mikilvæga leik og ef þið viljið fá aðstoð við bókunina þá mælum við með að þið sendið póst á hana Sesselju Jörgensen hjá Úrval Útsýn og hún mun gera allt sem hún getur til að aðstoða ykkur.
Tölvupósturinn hjá henni er:  sesselja@uu.is og síminn 585-4020.

Áfram Haukar!