Styttist í árgangamótið

Árlegt árgangamót í körfuknattleik verður haldið á laugardaginn næstkomandi og er verið að taka við skráningum á fullu. Það stefnir í svipaða þátttöku og síðustu ár en alltaf má gera betur og er það ósk nefndarinnar að þetta mót verði stærra og stærra með hverju árinu.

Spilaður verður körfubolti milli árganga frá kl. 16:00 – 19:00 og svo er haldið inn í veislusal í matinn þar sem árgangamótsmeistarar verða krýndir. Það er um að gera að skrá sig sem fyrst svo hægt sé að áætla hversu mikinn mat þarf að kaupa ofan í liðið. 

Skráning fer fram hér