Er Meistaradeildin framundan ???

Strákarnir okkar eiga ágætis möguleika á að komast í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Það verður auðvitað allt að ganga upp í forkeppninni og strákarnir að leggja mikið á sig til að slá út Sporting Neerpelt, sem er eitt af af sterkustu liðum Belgíu. Belgar hafa reyndar ekki verið hátt skrifaðir í alþjóðlegum handbolta en þetta verða örugglega mjög erfiðir leikir.

Ef allt gengur að óskum þá lendum við í F-riðli Meistaradeildarinnar og mótherjarnir verða þýska stórliðið Kiel, Sävehof frá Svíþjóð og US Creteil frá Frakklandi.

Nú er sem sé stefnan sett á að afgreiða Sporting Neerpelt og tryggja Haukum sæti í Meistaradeildinni.