Landsliðinu okkar hefur ekki gengið vel það sem af er á Evrópumótinu. Á morgun eru það Tékkar og er síðasti leikurinn í riðlinum. Við Haukar ætlum að hittast á Ásvöllum og horfa á leikinn saman og senda góða strauma til strákanna. Við ætlumst til og höfum fulla trú á að þeir rífi sig upp og nái góðum leik.
Útsendingin hefst kl. 17:00 og leikurinn byrjar kl. 17:30.
Áfram Ísland