Haukaveisla í Seinni Bylgjunni

Það verður sannkölluð Haukaveisla í Seinni Bylgjunni annað kvöld þegar þeir Vignir og Ásgeir Örn mæta í settið hjá Henry Birgi og fara yfir upphafið af gullöld mfl. karla hjá Haukunum. Þátturinn hefst kl 20.00 á Stöð2Sport og ætti Haukafólk klárlega ekki að láta þetta fram hjá sér fara

4. flokkur karla í bikarúrslit á sunnudag

4. fl karla í handbolta tryggði sér sæti í bikarúrslitum í vikunni eftir sigur á Selfoss. Úrslitaleikurinn fer fram í Laugardalshöllinni á sunnudag og byrjar kl. 16:00 en mótherjinn er ÍR. Það er því um að gera fyrir Haukafólk að fjölmenna og sjá þessa framtíðarleikmenn Hauka og styðja þá í baráttunni um titilinn. Áfram Haukar!

Undanúrslit Coca Cola bikarsins

Það er komið að stóru stundinni. Undanúrslitaleikir Coca Cola bikarsins eru handan við hornið. Veislan byrjar á miðvikudag þegar stelpurnar mæta KA/Þór kl. 18:00 og svo degi seinna leika strákarnir við ÍBV einnig kl. 18:00. Eins og vanalega er leikið í Laugardalshöll. Mikilvægt er að Haukafólk tryggji sér miða í gegnum Hauka svo að Haukar […]

Tvenna á Ásvöllum

Það verður mikið um að vera á Ásvöllum á laugardaginn þegar að boðið verður upp á tvo hörkuleiki. Strákarnir í U-liðinu spila við Stjörnuna U kl. 14:00 en ungu strákarnir hafa leikið mjög vel á tímabilinu og sitja í 2. sæti Grill 66 deildar karla. Stelpurnar ljúka svo deginum með leik við KA/Þór kl. 16.30. […]

Olísdeildar tvíhöfði

Það verður boðið upp á tvíhöfða á Ásvöllum á laugardaginn þegar að leikið verður í Olísdeildum kvenna og karla. Stelpurnar byrja þegar þær fá Val í heimsókn kl. 17:00. Svo taka strákarnir við kl. 19:15 þar sem Afturelding er mótherjinn. Það hefur ekki gengið sem skyldi í síðustu leikjum hjá liðunum en þau eru staðráðin […]

Bikarleikir framundan

Núna í vikunnu fara fram tveir bikarleikir hjá meistaraflokkum karla og kvenna. Strákarnir ríða á vaðið í kvöld, miðvikudagskvöld, þegar að Fjölnisstrákar koma í heimsókn á Ásvelli kl. 19:30. Það er mikið undir og því um að gera fyrir fólk að fjölmenna á Ásvelli í rauðu til að styðja strákana áfram í bikarnum. Minnum á hamborgaratilboðin […]

Fram mætir á Ásvelli

Það er loksins komið að fyrsta leik ársins hjá meistaraflokki karla þegar að þeir fá Fram í heimsókn þriðjudaginn 28. janúar kl. 19:30. Strákarnir töpuðu síðasta leiknum fyrir pásu og mæta því dýrvitlausir á móti sterku Framliði sem sótti í sig veðrið í síðustu leikjum fyrir pásu eftir brösulega byrjun. Það má því búast við […]

Fyrsti leikur á nýju ári

Það er loksins komið að fyrsta leik á nýju ári í handboltanum þegar að stelpurnar í meistaraflokki kvenna spila í Olísdeild kvenna. Leikurinn fer fram á morgun, laugardag, þegar að ÍBV kemur í heimsókn á Ásvelli kl. 16:00. Leikurinn er mjög mikilvægur í báráttunni um sæti í úrslitakeppni en með sigri styrkja stelpurnar stöðu sína […]