Hafnarfjarðarslagur í Grill 66 deild karla

Það verður sannkallaður stórleikur í Grill 66 deild karla í kvöld þegar að ungu strákarnir okkur halda í Kaplakrika og etja þar kappi við FH U í Hafnarfjarðarslag. Leikurinn hefst kl. 20:00 en ungu strákarnir eru í hörku toppbaráttu í deildinni og eru þeir í 2. sæti fyrir umferðina með 19 stig úr 14 leikjum. […]

Haukaliðin með sigra inn í bikarfrí

Nú er komið stutt frí á deildarkeppni meistaraflokka Hauka í handbolta vegna þess að um næstu helgi fer fram Final 4 í bikarnum. Því miður eru Haukaliðin ekki með í þetta skiptið og eru þau því á leið í stutt frí frá leikjum en öll liðin fóru á góðum nótum inn í fríið. Meistaraflokkur karla […]

Haukar halda í Garðabæinn

Það er stutt á milli leikja þessa daganna hjá meistaraflokki karla en í kvöld, fimmtudagskvöld, halda þeir í Garðabæinn þar sem þeir leika við Stjörnuna í Mýrinni kl. 20:00. Það eru allir leikir gríðarlega mikilvægir þessa stundina en fyrir leikinn eru Haukar í efsta sæti deildarinnar með 25 stig úr 16 leikjum en á eftir […]

Grótta kemur í heimsókn

Meistaraflokkur karla í handbolta fær Gróttu í heimsókn í Schenkerhöllina á morgun, sunnudag, kl 16:30. Þetta er leikur í 16.umferð Olísdeildar karla en fyrir leikinn eru Haukar í 2. sæti deildarinnar á meðan Grótta er í 10. sæti það er því til mikils að vinna fyrir bæði lið í þeirri baráttu sem liðin eru í. […]

Ungu strákarnir halda í Austurberg

Strákarnir í U-liðinu eiga hörkuleik í kvöld, föstudagskvöld, þegar þeir heimsækja ÍR U í Austurberg kl. 20:30. Strákarnir hafa staðið sig glæsilega á tímabilinu og eru staðráðnir í að halda því áfram en fyrir leikinn eru þeir í 3. sæti deildarinnar með 15 stig eftir 12 leiki. Það er því um að gera að eyða […]

Haukar fá Kristján Ottó Hjálmsson lánaðan

Handknattleiksdeild Hauka hafa gert samning við Handknattleiksdeild HK um að fá línumanninn Kristján Ottó Hjálmsson lánaðan. Kristján er nú þegar byrjaður að æfa með Haukum en hann er á láni út leiktíðina. Kristján Ottó sem er tvítugur að aldri hefur leikið með meistaraflokki HK í Grill 66 deild karla undanfarin 3 og hálft ár en […]

Leonharð lánaður í FH

Handknattleiksdeild Hauka hefur orðið við ósk Handknattleiksdeildar FH um að fá Leonharð Þorgeir Harðarson að láni út yfirstandandi keppnistímabil. Leonharð leikur því með FH fram til vors og snýr aftur að timabilinu loknu til liðs við Hauka.

Fullt af Haukafólki í landsliðum Íslands

Það var mikið um að vera hjá ungum Haukakrökkum fyrstu daga ársins en þá voru landsliðsæfingar hjá yngri landsliðum Íslands í handbolta og áttu Haukar fjölmarga fulltrúa í þeim verkefnum. Í U-15 ára landsliði kvenna áttu Haukar 7 fulltrúa en þar æfðu þær Agnes Ósk Viðarsdóttir, Elín Klara Þorkelsdóttir, Hekla Ylfa Einarsdóttir, Mikaela Nótt Pétursdóttir, […]

Síðasti heimaleikur ársins í Olísdeild karla

Þá er komið að síðasta heimaleik ársins. Það hefur ekki gengið sem skildi í síðustu leikjum en strákarnir eru staðráðnir í að enda árið á góðum nótum á sunnudag þegar að KA kemur í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 16.30. Allt Haukafólk er hvatt til að taka sér smá frí frá jólaundirbúningnum og skella sér á […]

Afturelding kemur í heimsókn í bikarnum í kvöld

Það er stutt á milli stórleikjanna þessa vikuna því eftir Hafnarfjarðarslaginn á mánudag er strax komið að því að hugsa um næsta leik. Sá leikur er í kvöld, fimmtudag, þegar að Afturelding kemur í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19:30 í 16 liða úrslitum Coca-Cola bikarsins. Þetta verður bikarslagur af bestu gerð þar sem að ekkert […]