Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Hafnarfjarðarslagur í Schenkerhöllinni í kvöld

    Það verður sannkallaður Hafnarfjarðarslagur í Schenkerhöllinni í kvöld, þegar Haukar eiga sinn fyrsta heimaleik í Olís-deild karla. Andstæðingarnir eru FH-ingar en báðum Hafnarfjarðarliðunum er spáð góðu gengi í vetur. Haukar áttu stórgóðan leik í Vestmannaeyjum á laugardaginn og unnu þar sannfærandi sigur. Nú er að fylgja þeim sigri eftir með góðum leik á fimmtudaginn. Athugið…

  • Ferðin til Lissabon

    Strákarnir í meistaraflokki karla spila í annarri umferð í Evrópukeppni félagsliða gegn stórliði S.L. Benfica og fer fyrri leikurinn fram í Lissabon laugardaginn 12. október n.k. kl. 17:00 og sá síðari viku síðar að Ásvöllum eða sunnudaginn 20. október  kl. 17:00. Það kom strax upp hugmynd um að reyna að vera með hópferð á leikinn…

  • Meistaraflokkarnir í handbolta í eldlínunni

    Bæði meistaraflokkslið Hauka í handbolta verða í eldlínunni á morgun, laugardag. Karlaliðið fer í víking til Eyja og spilar þar við heimamenn á meðan Haukastelpurnar etja kappi við HK á útivelli. Bæði liðin töpuðu leikjum sínum í síðustu umferð og eru dýrvitlaus að sýna hvað í þeim býr. Karlarnir keppa við ÍBV, sem vann góðan…

  • Fyrsti leikur hjá stelpunum

    Meistaraflokkur kvenna í handbolta leikur á morgun, laugardag, sinn fyrsta leik í Olís deildinni þetta tímabilið. Leikurinn fer fram í Schenkerhöllinni kl. 16:00 og er gegn Stjörnunni. Haukastelpurnar hafa leikið vel á undirbúningstímabilinu og unnu meðal annars UMSK mótið. Mótherjar stelpnanna er Stjarnan sem er með gríðarsterkt lið sem spáð er sigri í Olís deildinni…

  • Fyrsti leikur hjá stelpunum

    Meistaraflokkur kvenna í handbolta leikur á morgun, laugardag, sinn fyrsta leik í Olís deildinni þetta tímabilið. Leikurinn fer fram í Schenkerhöllinni kl. 16:00 og er gegn Stjörnunni. Haukastelpurnar hafa leikið vel á undirbúningstímabilinu og unnu meðal annars UMSK mótið. Mótherjar stelpnanna er Stjarnan sem er með gríðarsterkt lið sem spáð er sigri í Olís deildinni…

  • Tap í fyrsta leik

    Meistaraflokkur karla lék í gær sinn fyrsta leik í Olís deildinni í handbolta er leikið var gegn Valsmönnum undir stjórn Ólafs Stefánssonar. Valsmenn hófu leikinn betur og komust í 7-3 en þá tóku okkar strákar við sér og jöfnuðu í 7-7 og svo yfir 9-8 en staðan í leikhléi var svo 10-10. Haukar byrjuðu seinni…

  • Fyrsti leikur hjá mfl. karla í Olís deildinni í kvöld

    Mfl. karla í handbolta sækir Valsmenn heim í Vodofone höllina í kvöld kl. 20.00 og hvetur heimasíðan Haukafólk að mæta og hvetja strákana til sigurs í þessum fyrsta leik tímabilsins. Valsmönnum var spáð sigri í deildinni af forsvarsmönnum deildarinnar en Haukum var spáð þriðja sætinu. Lítill munur var þó á þrem efstu liðinum í þessari…

  • Góð stemmning á leikmannakynningunni

    Í gærkvöldi fór fram leikmannakynning hjá meistaraflokkum karla og kvenna í handbolta. Ágæt mæting var og mjög góð stemmning. Formaður deildarinnar, Þorgeir Haraldsson, byrjaði á að ræða almennt um starfið og það sem framundan væri, meðal annars hópferð sem fyrirhuguð á leiki S.L. Benfica og Hauka aðra helgi í október. Nýr talsmaður Hauka í horni,…

  • Leikmannakynning hjá meistaraflokkunum í handbolta

    Á morgun, þriðjudaginn 17. september, mun fara fram leikmannakynning hjá meistaraflokkum félagsins. Kynningin hefst kl. 20:00 á Ásvöllum og er það von okkar að sem flestir úr stuðningsmannahópnum okkar frábæra sjái sér fært að mæta en léttar veitingar verða á boðstólum. Þar mun einnig nýr talsmaður Hauka í horni frá handboltanum, Lúðvík Geirsson, vera með…