Lokahóf handknattleiksdeildar verður haldið á morgun
Eins og allir vita þá enduðu strákarnir tímabilið með stæl í gærkvöldi með því að landa Íslandsmeistaratitlinum að Varmá. Liðið fór taplaust í gegnum úrslitin, unnu 8 leiki, og sópuðu FH, Val og Aftureldingu úr keppni. Annað kvöld, miðvikudag, ætlum við að gera okkur glaðan dag í veislusalnum okkar að Ásvöllum. Boðið verður upp á…
