Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Haukar-Vardar

    Strákarnir unnu sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni í kvöld með því í að leggja Vardar Skopje frá Makedoníu í full spennandi leik. Við leiddum leikinn lengst af með 2-3 mörkum en hefðum átt að vera fleiri mörkum yfir ef vörin hefði haldið einhverju.. Birkir Ívar spilaði sérstaklega vel og var með 21 skot varið og…

  • Haukar-Vardar Skopje

    Minnum á leikinn í Meistaradeildinni hjá strákunum í kvöld kl. 20.00 á Ásvöllum. Eins og komið hefur fram er þetta gríðarlega mikilvægur leikur og strákarnir leggja örugglega allt undir til að ná 3ja sætinu í riðlinum. Mætum öll og styðjum íslenskan handbolta.

  • Meistaradeildin

    Það er kominn föstudagur og styttist í leikinn við Vardar Skopje í Meistaradeildinni á sunnudaginn kl. 20.00 á Ásvöllum. Þetta er mjög mikilvægur leikur, sá mikilvægast í deildinni til að ná 3ja sætinu í riðlinum. Við vitum öll að mikil deyfð hefur verið yfir strákunum okkar að undanförnu en við höfum tröllatrú á þeim og…

  • Haukar-KA SS-bikar mfl.ka.

    Hann endaði dapurlega leikurinn hjá strákunum á Ásvöllum í gærkvöldi. Þeir tóku á móti KA í 16-liða úrslitum SS-bikarsins og töpuðu leiknum 34-35. Fyrri hálfleikur var skelfilegur hjá strákunum okkar og virtust þeir algjörlega hafa gleymt hvernig spila á vörn. Gestirnir skoruðu fyrstu tvö mörkin, jafnt var 4-4 en þá sigu gestirnir framúr, 6-10, 15-19…

  • Barcelonaferðin – Fundur ofl.

    Nú er allt að verða klárt varðandi ferðina okkar til Barcelona. Brottför verður frá Keflavík fimmtudaginn 20. nóv. kl. 9:00 með flugi FI808. Fjórum tímum seinna verður lent á flugvellinum Gerona sem er skammt frá Barcelona. Þaðan er rúta á hótelið Hotel Pere IV. Heimför verður á sunnudaginn 23. nóv. kl. 19:00 að staðartíma. Rúta…

  • FH-Haukar mfl.kvenna

    Góður sigur hjá stepunum er þær unnu FH 23-24 í Kaplakrika í dag. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn og staðan 12-14 í hálfleik. Stelpurnar okkar byrjuðu seinni hálfleikinn af miklum krafti og var staðan orðin 14-21 þegar um 12 mínútur voru liðnar. Þá fór allt í baklás og skoruðu þær ekki nema 3 mörk þessar…

  • Fram-Haukar SS bikar kvenna

    Í kvöld unnu stelpurnar okkar glæsilegar sigur 20-30 á Fram í 8-liða úrslitum SS-bikarsins. Þær byrjuðu leikinn vel (2-5) en þá kom slæmur kafli þar sem ekkert gekk en Fram náði samt bara að minnka muninn í 4-5. Þá rifu stelpurnar okkar sig áfram og náðu góðu forskoti og staðan í hálfleik var 9-13. Í…