ÍR-Haukar á morgun
Minnum á leikinn á morgun miðvikudag kl. 19:15 í Austurbergi. ÍR-HAUKAR mfl.karla. Allir að mæta. Áfram Haukar.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Minnum á leikinn á morgun miðvikudag kl. 19:15 í Austurbergi. ÍR-HAUKAR mfl.karla. Allir að mæta. Áfram Haukar.
Strákarnir okkar unnu auðveldan sigur 31-21 í Hafnarfjarðarslag á Ásvöllum í kvöld. FH skoraði fyrsta markið en Haukar voru fljótir að jafna og skiptust liðin á að hafa forystu í stöðuna 6-6. Þá tóku okkar menn völdin og náðu afgerandi forskoti fyrir leikhlé 16-8. Í seinni hálfleik héldu Haukar takinu og juku forskotið, staðan var…
Minnum á leikinn hjá strákunum á sunnudaginn Haukar-FH kl. 20:00 á Ásvöllum. Tilvalið að enda helgina með þvi að mæta á alvöru „Hafnarfjarðarslag“ . Allir að mæta. FRAM HAUKAR
Strákarnir okkar unnu öruggan og frábæran fimm marka sigur á HK í Digranesi í kvöld í 8-liða úrslitum SS-bikarsins. Lokatölur 23-28. Haukar mættu vel stemmdir til leiks og tilbúnir að gefa allt í leikinn. Þeir byrjuðu betur, skorðu þrjú fyrstu mörkin og náðu fljótt fimm marka forystu 5-10. Í hálfleik var staðn 10-15 og okkar…
Á morgun þriðjudag 6. desember spila strákarnir okkar í 8-liða úrslitum SS bikarsins. Þeir fara í heimsókn til HK í Kópavogi og hefst leikurinn kl. 20:00. HK menn eru alltaf erfiðir heim að sækja svo hér er hægt að lofa hörkurimmu. Strákarnir okkar hafa átt erfitt uppdráttar undanfarið en á morgun mæta þeir fílefldir til…
Það var háspenna að Ásvöllum í kvöld er Haukar og Stjarnan gerðu jafntefli 28-28 í hörkuspennandi leik í mfl. karla. Leikurinn var þrælskemmtilegur á að horfa, fast tekist á og spennustigið hátt. Gestirnir skoruðu fyrsta markið, Haukar jöfnuðu 1-1 og bættu við tveimur 3-1. Þá komu tvo Stjörnumörk 3-5. Haukar jöfnuðu 5-5 og síðan var…
Nú í hádeginu var dregið í 8 liða úrslit SS-bikarsins. Dráttur var þessi: 8-liða úrslit SS-bikars kvenna: FH – Haukar Valur – Fram HK – ÍBV Stjarnan – Grótta Leikið verður 17. og 18. janúar. 8 liða úrslit SS-bikars karla: HK – Haukar Þór Akureyri – Stjarnan FH – ÍBV Fram – Fylkir Leikið verður…
Strákarnir okkar töpuðu 31-27 á Ítalíu í dag fyrir Torggler Meran og hafa þar með lokið þátttöku í Evrópukeppninni þetta tímabil. Ítalarnir skoruðu fyrsta markið og eftir um 10 mín. leik var staðan 6-5 fyrir heimamenn. Ítalir skoruðu næstu fjögur, 10-5 þegar fyrir hálfleikur var hálfnaður. Í hálfleik var staðan 17-12 fyrir Torggler Meran og…
Mætum öll að Ásvöllum í dag sunnudag kl. 16:50 og fylgjumst með beinni útsendingu á Sýn á leiknum á móti ítölum í meistradeildinni Torggler Group Meran – Haukar ÁFRAM HAUKAR
Strákarnir okkar spila við ítalska liði Torggler Group Meran á sunnudaginn. Þetta er úrslitaleikur um hvort liðið kemst áfram svo við biðjum alla að senda góða strauma til strákanna okkar. Leikurinn er kl. 18.00 að staðartíma eða kl. 17.00 að íslenskum tíma. Við hvetjum alla sem ekki eru á Ítalíu að fylgjast með leiknum á…