Besta íþróttafólk félagsins

Á gamlársdag fór fram hin árlega viðurkenningahátíð félagsins þar sem kynnt eru úrslit í kosningu besta íþróttafólks og þjálfara félagsins á árinu 2019. Auk þess fengu viðurkenningu 112 ungmenni sem tekið hafa þátt í verkefnum sérsambandanna KSÍ, HSÍ, KKÍ og KAÍ árinu 2019. Besta íþróttakona félagsins var kjörin körfuknattleikskonan Þóra Kristín Jónsdóttir, besti íþróttamaður handknattleiksmaðurinn […]

Viðurkenningahátíð Hauka 2019

Í hádeginu kl. 12:00 á Gamlársdag krýna Haukar besta íþróttafólk ársins 2019. Valin verða íþróttakona, íþróttakarl og þjálfari ársins. Tilnefndir eru 13 einstaklingar. Auk þess verða kölluð fram og heiðruð með viðurkenningu þeir einstaklingar sem valdir hafa verið í landsliðsverkefni sérsambanda Íslans það eru KSÍ, HSÍ, KKÍ og KAÍ, alls um 100 manns. Þær sem […]

Haukafólk á landsliðsæfingum

Þótt að jólin og áramótin séu að nálgast er nóg um að vera hjá handknattleiksfólki því næstu vikurnar fara fram landsliðsæfingar hjá öllum landsliðum Íslands í handbolta. Það verður Afrekshópur kvenna sem ríður á vaðið í þessari viku en þar eiga Haukar 3 flotta fulltrúa en það eru Alexandra Líf Arnarsdóttir, Berta Rut Harðardóttir og […]

Síðasti leikur ársins

Það er komið að síðasta handboltaleik Hauka á árinu 2019 en þá heldur meistarflokkur karla í Garðabæ og etur þar kappi við Stjörnuna. Leikurinn fer fram á sunnudag og er í TM-höll þeirra Garðbæinga í Mýrinni kl. 16:00. Þetta er sem fyrr segir síðasti leikur ársins hjá meistarflokkum Hauka í handbolta en strákarnir hafa spila […]

Síðasti heimaleikur ársins

Það er komið að síðasta heimaleik ársins 2019 í handboltanum. Þá mæta Norðanmenn í KA á Ásvelli í Olísdeild karla. Haukar hafa leikið mjög vel í deildinni á árinu 2019 og vilja enda árið á heimavelli með stæl. Það er því um að gera fyrir allt Haukafólk að fjölmenna á Ásvelli á laugardag kl. 17:30 […]

Stórleikur í bikarnum

Það er komið að fyrsta leik í bikarnum þetta tímabilið hjá strákunum. Það er enginn smáleikur því að Valsmenn koma í heimsókn á Ásvelli fimmtudaginn 21. nóv kl. 19:30. Strákarnir hafa staðið sig vel í Olísdeildinni þetta tímabilið en það telur ekkert þegar að komið er út í bikarinn því þar er það allt eða […]

Ungar Haukastelpur á landsliðsæfingum

Nú um helgina æfa kvennalandslið Íslands í handbolta og eiga Haukar sína fulltrúa á þeim æfingum en um er að ræða fulltrúa í U-18 ára og U-16 ár landsliðinu. Í U-18 ára landsliðinu er Margrét Björg Castillo eini fulltrúi Hauka en hún er nú þegar orðin hluti af meistaraflokksliði Hauka og hefur hún verið í […]

Tvíhöfði á laugardag

Það er leikið þétt þessa dagana hjá meistaraflokkunum en á laugardag verður boðið upp á tvíhöfða á Ásvöllum þegar að báðir flokkarnir eiga heimaleiki. Stelpurnar fá HK í heimsókn kl. 17:00 og strákarnir leika við Fjölni kl. 19:30. Bæði lið unnu góða sigra í vikunni en strákarnir unnu Selfoss í flottum leik fyrir framan fullt […]

Bikarleikur hjá stelpunum

Það verður stórleikur á Ásvöllum í kvöld þegar að stelpurnar í handboltanum fá Eyjastúlkur í heimsókn í 16-liða úrslitum Coca Cola bikarsins. Leikurnn hefst kl. 19:00 og eru stelpurnar staðráðnar í að fylgja á eftir síðasta leik gegn ÍBV þegar þær unnu þær í flottum leik í Vestmannaeyjum. Það er því um að gera fyrir […]