Síðasti leikur ársins

Það er komið að síðasta handboltaleik Hauka á árinu 2019 en þá heldur meistarflokkur karla í Garðabæ og etur þar kappi við Stjörnuna. Leikurinn fer fram á sunnudag og er í TM-höll þeirra Garðbæinga í Mýrinni kl. 16:00.

Þetta er sem fyrr segir síðasti leikur ársins hjá meistarflokkum Hauka í handbolta en strákarnir hafa spila feikilega vel í deildinni allt árið 2019 og er taplausir á þessu tímabili og aðeins einum á fyrri hluta ársins.

Strákarnir eru því staðráðnir í því að halda þessu gengi áfram og fara inn í hið langa jóla- og landsliðsfrí með góðum leik og sigri. Það er því um að gera fyrir Haukafólk að taka sér spá pásu frá jólaundirbúningnum og kíkja í Garðabæinn á sunnudag kl. 16:00 til að styðja strákana til sigurs. Áfram Haukar!