FH – Haukar forsala í dag

Eins og flestir Hafnfirðingar vita þá verður stórleikur í N1-deild karla á miðvikudaginn þegar FH og Haukar mætast í N1-deild karla. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og fer leikurinn fram í Kaplakrika. Miðasala á leikinn hefst klukkan 12:00 í verslunarmiðstöðinni Firðinum í dag. Það er orðið langt síðan þessi lið mættust í deildarkeppni og því er […]

Haukar – Fram á morgun

Á morgun, tekur meistaraflokkur kvenna á móti Fram í N1-deild kvenna. Leikurinn hefst á svo mjög skemmtilegum tíma eða klukkan 13:00.  Haukastelpurnar hafa verið á fljúgandi siglingu og hafa sigrað síðustu fjóra leiki til að mynda sigruðu þær lið Vals í síðustu umferð með tveimur mörkum 24-22.  Fram liðið sem kom mörgum á óvart á […]

Frítt er á landsleik Íslands og Belgíu

Á miðvikudaginn næstkomandi mætir íslenska landsliðið landsliði Belga í undankeppni Evrópumótsins í handbolta, en þetta er fyrsti leikur riðilsins. Leikurinn fer fram í Laugardalshöll og hefst leikurinn klukkan 20:15. Nokkrir Haukamenn eru í æfingahópnum fyrir landsleikinn, þar er fyrst hægt að telja upp línumanninn Kára Kristján Kristjánsson sem hefur slegið í gegn í vetur bæði […]

Búið að draga í Eimskipsbikarnum

Í hádeginu í dag var dregið í Eimskipsbikar karla og kvenna. Í kvennaflokki var dregið í 8-liða úrslit en í karlaflokki í 16-liða úrslit. Haukar áttu eitt lið í hvorum potti. Bæði liðin drógust gegn ÍR og leika bæði liðin í Austurbergi. Ekki er enn búið að ákveða almennilega leikdaga en konurnar munu annað hvort […]

Haukar U sigruðu ÍBV í 1.deildinni

Enn halda leikmenn Hauka U að koma á óvart í 1.deildinni, og í dag gerðu þeir sér lítið fyrir og sigruðu ÍBV í 1.deildinni með þremur mörkum, 31-28. Með sigrinum er Haukar komnir með 8 stig í 4.sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir ÍR, Gróttu og Selfoss sem eru jöfn að stigum í efstu sætunum. […]

14 marka sigur Hauka á Víking

Í dag tóku Haukamenn á móti Víkingum í N1 deild karla. Leikurinn fór fram að Ásvöllum og hófst hann klukkan 16:00. Fyrir leikinn voru Haukar í 6. sæti með 3 stig en Víkingar í 8., og neðsta sæti deildarinnar, án stiga. Haukar höfðu tapað nokkuð mörgum leikjum í röð og þurftu nauðsynlega að sigra ætli […]

Haukasigur í Vodafone-höllinni

Í dag tóku Valstelpur á móti Haukastelpum í N1 deild kvenna. Fyrir leikinn voru liðin jöfn í 2. og 3. sæti með 6 stig eftir 4 leiki. Á toppi deildarinnar sat svo Stjarnan með 10 stig eftir 5 leiki. Það var því ljóst að sigurlið leiksins myndi minnka forskot Stjörnunnar niður í tvö stig.  Leikurinn […]

Haukamenn í yngri landsliðum

Á föstudaginn voru tilkynntir þrír landsliðshópar yngri landsliða hjá HSÍ. Um er að ræða U-15, U-17 og U-19 landslið karla. U-15 og U-17 hóparnir eru kallaðir saman til æfinga um næstu helgi en U-19 landsliðið er valið fyrir keppnisferð til Frakklands þar sem liðið tekur þátt í Pierre Tiby Tournament 2008 mótinu. Í hópunum þremur […]

Tveir leikir á Ásvöllum á morgun

Á morgun sunnudag verða tveir handknattleiksleikir leiknir á Ásvöllum. Fyrst mætast Haukar U og ÍBV í 1.deild karla og strax að þeim leik loknum mætast Haukar og Víkingur í N1-deild karla. Fyrri leikurinn hefst klukkan 14:00 en sá seinni 16:00. Haukamenn töpuðu sínum þriðja leik í deildinni í röð síðasta fimmtudag gegn Fram en lokatölur […]

Kári Kristján í íslenska landsliðið

Í hádeginu í dag tilkynnti Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari í handknattleik 18 manna landsliðshóp sem mun æfa saman í næstu viku, en 16 leikmenn úr hópnum munu svo leika fyrstu leikina í forkeppni Evrópumeistaramótsins sem fer fram í Austuríki í janúar 2010. Íslenska landsliðið er í riðli með Belgum, Norðmönnum, Eistum og Makedóníu. Fyrsti leikurinn […]