Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Sigur á Þór á heimavelli

    Haukar unnu fyrr í dag, 1-0 sigur á Þórsurum í 1.deild karla en leikurinn fór fram á Schenker-vellinum okkar, að Ásvöllum. Það var Enok Eiðsson sem smurði boltann upp í vinkilinn í fyrri hálfleik og það mark tryggði Haukum sannfærandi sigur í dag. Næsti leikur Hauka er gegn Þrótti á Valbjarnarvellinum, næstkomandi fimmtudag klukkan 20:00. …

  • Stórleikur á Ásvöllum á laugardag þegar Haukar mæta Þór

    Á laugardaginn verður sannkallaður stórleikur í 1. deild karla í knattspyrnu þegar Haukar taka á móti Þór Akureyri á Ásvöllum. Leikurinn hefst kl. 14.00. Haukar eru með fjögur stig eftir tvo leiki en liðið sigraði Tindastól 2 – 0 í fyrstu umferð og gerði svo 0 – 0 jafntefli við Hött á Egilsstöðum sl. laugardag….

  • Jafntefli gegn Hetti hjá strákunum

    Það var svokölluð hátíð í bæ þegar Höttur lék sinn fyrsta heimaleik í 1. deild karla frá upphafi, í heimsókn voru Haukar úr Hafnarfirði. Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru mjög góðar og heimamenn fjölmenntu á völlinn.   Leikurinn fór rólega af stað og greinilegt var að liðin ætluðu ekki að taka neina sénsa framan af leik….

  • Jafntefli í fyrsta leik hjá stelpunum

    Haukastelpur gerðu hreint út sagt grátlegt jaftefli við ÍR í fyrsta leik sínum í Íslandsmótinu í knattspyrnu. Til að gera langa sögu stutta náðu okkar stelpur forystu með marki Þórdísar Önnu Ásgeirsdóttur á 27 mínútu og héldu henni allt þar til ÍR-ingar skoruðu jöfnunarmark sitt beint úr aukaspyrnu þegar ekki nema 30 sekúndur lifðu leiks,…

  • Stelpurnar hefja leik í kvöld

    Fyrsti leikur hjá stelpunum í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu fer fram í kvöld á Hertz-vellinum (ÍR-vellinum) í neðra Breiðholti. Skv. spá sérfræðinga fótbolta.net er báðum liðum spáð ágætis gengi í sumar og þó sér í lagi okkar stelpum sem spáð er 3. sæti riðilsins. Ýmislegt þarf þó að ganga upp svo að svo geti orðið…

  • Lokahóf 1×2 tókst vel!

    Lokahóf 1×2 getrauna hjá Haukum var haldið með miklum myndarbrag sl. laugardag á Ásvöllum. Mikið fjölmenni mættu og þáði veglegar veitingar. Jón Björn Skúlason stjórnaði skemmtuninni af miklum myndarbrag og var það mál manna að kallinn hafi staðið sig einstaklega vel! Krýndir voru sigurvegarar hópleiksins og fór leikar þannig að Steinn varð meistari í meistaradeild,…

  • Næstu leikir í fótboltanum

    Fyrir Hauka-fólk sem er á faraldsfæti næstu daga þá á meistaraflokkur karla í fótboltanum krefjandi útileiki næstu daga.  Í kvöld spilar liðið í Stykkishólmi gegn Snæfelli í Bikarkeppni KSÍ en lið Snæfells leikur í 3.deild karla og hefst leikurinn kl. 20:00.   Á laugardaginn kl. 14:00 mætum við svo Hetti og fer leikurinn fram á…

  • Haukasigur í fyrstu umferð

    Haukar sigruðu Tindastól í fyrsta leik sumarsins sem fram fór á Ásvöllum í gær. Haukar skoruðu tvö mörk gegn engu marki gestanna. Leikurinn var sýndur í beinni á SportTV og nú er hægt að sjá mörk Hauka á netinu, með því að smella hér sem og viðtal við Guðmund Sævarsson fyrir leik og Sigurbjörn Hreiðarsson eftir leik….