Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Flottur sigur á Selfossi

    Haukarnir gerðu góða ferð austur fyrir fjall í kvöld og tóku öll stigin sem í boði voru heim í Fjörðinn. Mörk Hauka skoruðu þeir Hilmar Trausti, Brynjar Ben. og Hilmar Geir. Næsti leikur Hauka er á heimavelli, laugardaginn 1.júní gegn Fjölni.  Haukar og Selfoss voru með jafn mörg stig fyrir leikinn og það var búist við hörkuleik…

  • Haukastelpur taka á móti Fram á morgun

    Fyrsti leikur Hauka í 1.deild kvenna þetta sumarið fer fram á Schenkervellinum á Ásvöllum annað kvöld, föstudagskvöld, kl.19.15. Andstæðingar okkar stúlkna að þessu sinni eru Frammarar úr Safamýri og Grafarholti. Haukaliðið er mikið breytt frá síðasta ári, margir leikmenn hafa horfið á braut, flestir hafa hætt knattspyrnuiðkun en einhverjir hafa farið til annara liða. Einn…

  • Allir á Selfoss í kvöld!

    Í kvöld kl. 19:15 hefst leikur Hauka og Selfoss á heimavelli þeirra síðarnefndu en um er að ræða þriðju umferð sumarsins í 1. deildinni í knattspyrnu.  Okkar strákar unnu fyrsta leikinn gegn Þrótti á útivelli en biðu lægri hlut gegn Grindavík á heimavelli sl. föstudag.   Okkar menn eru staðráðnir í að ná í þrjú…

  • Selfoss – Haukar í kvöld

    Þriðja umferðin í 1.deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Þar eigast til að mynda Selfoss og Haukar við í hörkuleik sem fram fer á Selfossi. Leikurinn hefst klukkan 19:15.  Bæði lið hafa unnið einn leik og tapað öðrum og eru því bæði með þrjú stig í deildinni.  Haukaliðið sigruðu Þróttara á útivelli 2-1…

  • Tap í fyrsta heimaleik sumarsins

    Haukar tóku á móti Grindavíkum í hörkuleik í 1.deild karla í gærkvöldi. Grindvíkingar höfðu betur í leiknum 0-1 með marki um miðjan fyrri hálfleik. Þetta var fyrsti heimaleikur Hauka í 1.deildinni og jafnframt þeirra fyrsta tap í deildinni. Eina mark leiksins leit dagsins ljós á 35.mínútu og það gerði hægri bakvörðurinn Jordan Edridge með skot…

  • Stelpurnar spila í bikarnum á morgun

    Haukar og Víkingur Ólafsvík mætast á morgun kl.14.00 á Ásvöllum í Borgunarbikarkeppni kvenna í fótbolta. Um er að ræða fyrsta leik sumarsins hjá stelpunum okkar. Haukaliðið hefur tekið miklum breytingum í vetur og hefur hópurinn styrkst til mikilla muna, stelpurnar ætla sér stóra hluti í deildinni í sumar og góður stuðningur áhorfenda skiptir þær að…

  • Pála Marie komin heim!

    Haukar fengu góðan liðsstyrk í 1. deild kvenna áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær því Pála Marie Einarsdóttir var lánuð til félagsins frá Val.  Pála Marie hefur verið lykilmaður í liði Vals undanfarin ár en lék aðeins sjö leiki í Pepsi-deildinni í fyrra því hún fór í barneignarleyfi.  Hún hóf feril sinn hjá Haukum og…

  • Veisla fyrir leik Hauka og Grindavíkur á föstudagskvöld!

    Haukar efna til veislu á föstudaginn þegar meistaraflokkur karla mætir Grindavík í fyrsta heimaleik sumarsins.  Við verðum í salnum á 2. hæð og opnar húsið kl. 18.00 þar sem  kokkur knattspyrnudeildarinnar, Sigþór Marteins., mun grilla borgara sem verða seldir á vægu verði.  Óli Jó mun fara yfir leikinn með stuðningsmönnum og leikurinn hefst svo kl….

  • Haukar úr leik í bikarnum

    Haukar luku keppni í Borgunarbikar karla í kvöld. Haukaliðið heimsótti Víking Reykjavík í Fossvoginn en bæði lið leika í 1.deildinni. Víkingar fóru með sigur úr leiknum 2-0 eftir að staðan hafi verið 1-0 í hálfleik. Haukaliðið átti fína kafla til að byrja með, byrjuðu af miklum krafti en síðan komust Víkingar meira inn í leikinn…