-
-
Opið fyrir umsóknir á Afrekslínu Hauka veturinn 2019-20
Það er opið fyrir umsóknir á Afrekslínu Hauka 2019-20! Fyrri umsóknarfrestur er til 1. júlí. Allar upplýsingar er að finna inni á umsóknareyðublaðinu. Afrekslínan er annars vegar Afreksskólinn fyrir 2004-2006 módel og svo Afrekssviðið fyrir 2000-2003 módel. Ítarlegar upplýsingar ásamt umsóknareyðublaði má finna með því að SMELLA HÉR
-
Frábær Hauka-dagur með Söru Björk
Frábær Hauka-dagur á Ásvöllum í gær þegar landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir var sæmd Silfurstjörnu Hauka. Sara tók sér góðan tíma til að spjalla við yngri iðkendur þar sem Kristján Ómar Björnsson, þjálfari meistaraflokks karla, var í hlutverki spyrils. Þar veitti hún svo sannarlega mörgum iðkendum góð ráð fyrir framtíðina enda er Sara mikil fyrirmynd, bæði…
-
Sara Björk fær Silfurstjörnu Hauka fyrir leik Hauka og Þróttar R. á sunnudaginn
Haukar í horni og grillið frá klukkan 12 Sara spjallar við yngri iðkendur klukkan 13 Origo býður frítt á leikinn klukkan 14 Knattspyrnufélagið Haukar hefur ákveðið að veita Söru Björk Gunnarsdóttir Silfurstjörnu Hauka í tilefni af því að hún var valin Íþróttamaður ársins 2018. Sara verður heiðursgestur á leik Hauka og Þróttar R. í Inkasso…
-
Erla, Mikaela og Viktoría spiluðu sinn fyrsta U16 landsleik
Þrjár Hauka-stelpur spiluðu í dag sinn fyrsta U16 landsleik fyrir Ísland þegar liðið mætti Búlgaríu og sigraði 6-0. Leikurinn fór fram í Króatíu og er liður í UEFA móti. Erla Sól Vigfúsdóttir var í byrjunarliði Íslands í leiknum og svo komu þær Viktoría Diljá Halldórsdóttir og Mikaela Nótt Pétursdóttir inn á í síðari hálfleik. Knattspyrnudeild…
-
Sexan sigraði & Leikmenn meistaraflokks karla fóru á kostum
Sexan sigraði Árgangamót Hauka sem haldið á Ásvöllum í gær. Mótið var mjög vel heppnað þó svo að það hafi verið fámennara en oft áður og margir hörku leikir. Stutt hlé var gert á mótinu þar sem leikmenn meistaraflokks karla og kvenna voru kynntir en þjálfarar sáu um það af stakri prýði. En það er…
-
Fareed Sadat semur við knattspyrnudeild Hauka
Fareed Sadat hefur gengið til liðs við knattspyrnudeild Hauka og mun spila með liðinu í Inkasso deild karla í sumar. Hann verður í hópnum á morgun þegar okkar strákar mæta liði KFS í Mjólkurbikarnum. Fareed Sadat er tvítgur sóknarmaður sem fæddist í Afganistan en fluttist ungur til Finnlands. Hann hefur leikið með yngri landsliðum Finnlands…
-
5-0 sigur gegn Augnablik – Elín Björg með þrennu
Haukar sigruðu Augnablik 5-0 í Lengjubikar kvenna í kvöld en leikið var á Ásvöllum. Bæði liðin leika í Inkasso deildinni í sumar. Elín Björg Símonardóttir kom okkar stelpum yfir á 7. mínútu og var svo aftur á ferðinni á 23. mínútu með góðu skallamarki eftir frábæra fyrirgjöf frá Sunnu Líf Þorbjörnsdóttur. Leli Halldórsdóttir bætti svo…
-
Kristófer skoraði gegn Bólivíu með U16
Kristófer Jónsson, leikmaður í 3. flokki Hauka í knattspyrnu, var á skotskónum í dag með U16 ára landsliði Íslands er liðið lagði Bólivíu 3-0 UEFA Development Tournament. Ívan Óli Santos (ÍR) og Hákon Arnar Haraldsson (ÍA) skoruðu hin mörkin. Kristófer er á eldra ári í 3. flokki en hefur nú þegar fengið að spreyta sig með…
-
Níu úr Haukum á úrtaksæfingum KSÍ
Alls hafa sjö stelpur í 3. flokki kvenna hjá Haukum verið valdar til að taka þátt í úrtaksæfingum hjá KSÍ í mars og apríl. Þær Berghildur Björt Egilsdóttir, Elín Björg Símonardóttir, Erla Sól Vigfúsdóttir, Mikaela Nótt Pétursdóttir og Viktoría Diljá Halldórsdóttir voru valdar til að taka þátt í úrtaksæfingum U16 dagana 12. og 13. apríl…
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
